Filippseyingar láti ekki undan 13. október 2005 14:24
Stjórnvöld í Bagdad hvetja Filippseyinga til að láta ekki undan hótunum mannræningja í Írak sem segjast nú vera að undirbúa aftöku filippseysks gísls, ef filippseyskir hermenn verði ekki kallaðir heim. Mannræningjar í Írak hafa nú í haldi filippseyskan karlmann sem þeir hóta að hálshöggva, verði hersveitir landsins ekki kallaðar heim. Aðeins er 51 filippseyskur hermaður í Írak en um 4000 Filippseyingar stunda vinnu þar, aðallega fyrir bandarískar herstöðvar. Hermennirnir eiga samkvæmt áætlun að fara frá Írak þann 20. ágúst en mannræningjarnir krefjast þess að það verði mánuði fyrr, ella verði þessi 46 ára gamli átta barna faðir tekinn af lífi. Haft er eftir fulltrúa filippseyska utanríkisráðherrans á arabísku sjónvarpsstöðinni Al Jazeera að hersveitirnar verði kallaðar heim „sem fyrst“ en forseti Filippseyja, Gloria Arroyo, sagði um helgina að ekkert yrði gefið eftir. Stjórnvöld í Bagdad hvöttu í dag stjórnvöld Filippseyja að láta ekki undan hryðjuverkamönnunum. Bandarísk stjórnvöld hafa lagt mikla áherslu á að þær þjóðir sem eru með herdeildir í landinu láti ekki undan kröfum mannræningja. Nýlega hrósaði varnarmálaráðherrann Donald Rumsfeld bæði Japönum og Suður-Kóreumönnum fyrir að láta ekki undan þó að ríkisborgurum þessara landa hafi verið rænt í Írak. Hann gagnrýndi á sama tíma Spánverja fyrir að kalla hersveitir sínar heim eftir sprenginguna á lestarstöðinni í Madríd í mars. Sagði Rumsfeld að það að gefa eftir væri eins og að hella olíu á eld. Ræningjarnir segjast vera að undirbúa aftöku mannsins. Ekki er vitað nákvæmlega hversu margir erlendir ríkisborgarar eru nú í haldi mannræningja í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Sjá meira