Innlent

Samningur upp á 11 milljarða

Atlanta hefur nýverið gert samninga að verðmæti um ellefu milljarða króna um fraktflug á Boeing 747 vélum félagsins. Hluti af þessum samningum er framlenging á eldri samningum en annað er hrein viðbót. Þetta sannar traust samstarfsaðila á félaginu segir Magnús Stephensen framkvæmdastjóri hjá móðurfélaginu Avion Group. Um áramótin sameinast Atlanta Íslandsflugi og verða þá starfsmenn fyrirtækjanna tveggja orðnir um fimmtán hundruð talsins. Þar af eru um þrjú hundruð Íslendingar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×