Flóra Íslands greind í gegnum farsímann 23. maí 2012 05:30 Skjámyndirnar sýna þrjá valmöguleika af mörg hundruð. Notandinn er leiddur til niðurstöðu með skýringarmyndum; einföldum og flóknari valmöguleikum. mynd/sigmundur
Íslenskur hugbúnaður fyrir snjallsíma og spjaldtölvur til að greina plöntur á einfaldan hátt kemur senn á markað. Tæknin nýtist við kennslu og við alla almenna og faglega náttúruskoðun. Fugla- og pöddulyklar eru á næsta leiti. Íslenskir hugvits- og náttúruáhugamenn hafa þróað greiningarlykil fyrir flóru Íslands fyrir Android stýrikerfið í farsíma og spjaldtölvur. Greiningarlyklar fyrir fugla og skordýr eru á næsta leiti. Tæknin gerir leikmönnum jafnt sem sérfræðingum kleift að greina fyrirbæri í náttúrunni á einfaldan hátt. Plöntulykillinn, eins og hann er kallaður, hefur að geyma rúmlega 800 ljósmyndir af um 470 plöntum, ásamt 400 teikningum sem skýra frá hugtökum á myndrænan hátt. Sigmundur Helgi Brink, aðjúnkt hjá Landbúnaðarháskólanum, átti frumkvæði að verkefninu og hefur unnið að þróun þess ásamt Guðmundi Frey Hallgrímssyni forritara. „Það er ekkert sambærilegt til annars staðar en hugmyndafræðin á bakvið plöntulykillinn hefur alla tíð snúist um að fræða og upplýsa. Það má segja að þessi tækni hafi óendanlega möguleika og fugla- og pöddulykill eru langt komnir. Greiningarlykill fyrir íslenska steina er á hugmyndastigi,“ segir Sigmundur. Gagnvirkni spilar stórt hlutverk þar sem hugbúnaðurinn krefst þess af notandanum að skoða plöntuna, velja fyrir ákveðnum einkennum og smella svo á snertiskjá í símanum sínum. Þannig er notandinn leiddur í gegnum grasafræðina með hundruðum skýringarmynda. Sigmundur segir að greiningarlykillinn geti þjónað hlutverki í tengslum við ferðaiðnaðinn og landkynningu, innan lands sem utan. Fræðsluhlutverk hans er ótvírætt hvort sem um er að ræða umhverfisfræði, náttúrufræði, vistfræði, menningu og síðast en ekki síst nýsköpun. Hugbúnaðurinn er einfaldur í notkun og er ætlaður áhugamönnum um grasafræði á öllum aldri. „Ef þú ert barn og kannt varla að lesa þá getur þú valið lit eða lögun plöntunnar en þeir sem eru lengra komnir geta nýtt sér þungar skilgreiningar eins og einfræja aldin án svifhára eða klofaldin sem klofna í einfræja hluta, svo dæmi sé tekið. Lykillinn býður því upp á valmöguleika fyrir alla, möguleikarnir eru því ótal margir og með tímanum fer fólk að beita lyklinum fyrir sig á flóknari atriði eða spurningar.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Sjá meira