Matur

Jólaís Sylvíu Haukdal

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vísir/Sylvía Haukdal

Bakað með Sylvíu Haukdal eru nýir þættir á Stöð 2 Maraþon. Í þessum þætti deilir hún girnilegum jólaís. 

Sylvía Haukdal er ótrúlega klár þegar kemur að kökubakstri og kökuskreytingum. Hún heldur úti fallegu kökubloggi ásamt því að starfa hjá Sætum syndum. Þættirnir hennar verða sýndir á Stöð 2 maraþon í desember. Í spilaranum hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni en uppskrift og aðferð er neðar í fréttinni. Við gefum Sylvíu Haukdal orðið. 

Ís

220 ml rjómi

220 ml Millac jurtarjómi

1 dós niðursoðin mjólk

2 tsk vanilludropar

1 stk vanillustöng

100 g karamellukurl

Aðferð:

  1. Við byrjum á því að stífþeyta saman rjóma og jurtarjómann.
  2. Síðan hrærum við varlega niðursoðinni mjólk, vanilludropum, innan úr einni vanillustöng og karamellukurli saman við rjómann.
  3. Næst setjum við ísblönduna í sílikon form eða form sem henntar og frystum í að minnsta kosti sólarhring.

Saltkaramellusósa:

200 ml. rjómi

70 ml sýróp

2. dl sykur

1 tsk smjör

1,5 tsk sjávarsalt

Aðferð:

  1. Setjum rjóma, sýróp, sykur, smjör og sjávarsalt í pott og sjóðum þar til blandan fer að þykkna og dökknar aðeins. 
  2. Tökum karamelluna úr pottinum og leyfum að kólna.

100 g ristaður kókos

Ber til skreytinga


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×