Aðgerð Gísla gekk vel sem verður þó frá í allt að sex mánuði Anton Ingi Leifsson skrifar 6. febrúar 2019 20:00
Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta og leikmaður Kiel í Þýskalandi, verður frá í allt að sex mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð á öxl eftir HM. Gísli Þorgeir meiddist í úrslitaeinvíginu gegn ÍBV með FH í Olís-deild karla áður en hann fór til Kiel sumarið 2018. Meiðslin tóku sig upp á HM í janúar og þurfti hann í aðgerð eftir mótið. „Aðgerðin gekk frábærlega að sögn lækna. Þetta var stærra en þeir héldu upphaflega en þeir sögðu að aðgerin hafi gengið vel,“ sagði Gísli í samtali við Guðjón Guðmundsson í kvöldfréttum Stöðvar 2. „Ég verð í fatla næstu þrjár til fjórar vikur og eftir það er þetta bara eitt skref í einu með stýringu sjúkraþjálfara. Vonandi verð ég tilbúinn að gera eitthvað almennilegt eftir þrjá mánuði en þetta verður skref fyrir skref.“ „Þetta tímabilið er úti og ég get hugsað það þannig að ég hef svo sumarið til þess að koma mér í gang fyrir næsta tímabil. Ég verð vonandi 100% klár fyrir næsta tímabil,“ bætti Gísli við.“ Gísli var afar frískur framan á HM en segir sjálfur að klókari varnarmennirnir hafi bakkað vel á hann enda hafi þeir séð að hann gæti ekki skotið utan af velli vegna axlarmeiðslanna. „Það gekk ekki lengur að spila eins og ég var að gera. Það var hætta að þetta myndi breyta mér sem handboltamanni. Ég vil það auðvitað ekki og vil ekki missa það að geta skotið á markið.“ „Það sást þegar líða fór á HM að þeir sem voru klókari voru byrjaðir að bakka aðeins. Þeir sáu að ég get ekki skotið utan af velli og það gengur ekki. Ég reyni bara að gera það sem besta úr því sem komið er.“
Handbolti Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Fótbolti Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Fleiri fréttir Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Sjá meira