Ólafur markahæstur í sigri en óvænt tap Ljónanna á heimavelli Anton Ingi Leifsson skrifar 6. febrúar 2019 19:36 Ólafur í leik með Kristianstad. vísir/getty
Alexander Petersson skoraði fjögur mörk er Rhein-Neckar Löwen tapaði nokkuð óvænt fyrir Vardar í Meistaradeild Evrópu á heimavelli í kvöld, 30-27. Gestirnir frá Makedóníu voru fjórum mörkum yfir í hálfleik og unnu að lokum með þremur mörkum en Guðjón Valur Sigurðsson spilaði ekkert með Ljónunum vegna meiðsla. Þeir eru þó enn í góðum málum í Meistaradeildinni en þeir eru í þriðja sæti riðilsins með tólf stig er þrjár umferðir eru eftir af riðlinum. Efstu sex liðin fara áfram svo Ljónin þurfa ekkert að stressa sig.Ólafur Guðmundsson var markahæstur er sænsku meistararnir í Kristianstad unnu tveggja marka sigur, 28-26, á Karlskrona í kvöld eftir að hafa verið 16-13 yfir í hálfleik. Ólafur skoraði sex mörk en Selfyssingurinn Teitur Örn Einarsson bætti við tveimur mörkum. Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað en Kristianstad er með níu stiga forskot á toppi deildarinnar.Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði ekki úr sínu eina skoti er topplið GOG í dönsku úrvalsdeildinni vann fjögurra marka sigur á Lemvig, 28-24, eftir að hafa leitt með einu marki í hálfleik. GOG á toppnum.Björgvin Páll Gústavsson varði þrjú skot af þeim tólf sem hann fékk á sig er Skjern rúllaði fyrir Árósar, 36-28, eftir að hafa verið átta mörkum yfir í hálfleik, 20-12. Skjern er í sjöunda sæti deildarinnar.
Handbolti Mest lesið Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Fimmtugur og fúlskeggjaður Svíi stal senunni á HM Sport Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Enski boltinn Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Handbolti Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna Körfubolti „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Enski boltinn Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Handbolti Kærasta Haaland hefur fengið nóg Enski boltinn Fleiri fréttir Spara margar milljónir vegna ráðningar Rúnars Algjörir yfirburðir Noregs halda áfram Langri þrautagöngu Þýskalands lokið Boða uppsagnir hjá Íslendingaliðinu Rúnar snýr aftur í þýsku úrvalsdeildina „Þetta var afleitt, ég segi bara afsakið“ „Má ekki gleyma kónginum á Akureyri“ Haukur í ham gegn sveinum Guðjóns Vals Framarar hefndu loks með stórsigri KA - Afturelding 22-28 | Öruggt hjá gestunum á Akureyri Gísli meiddist en fór aftur inn á völlinn: „Þurfti að tala læknana svolítið til“ Orri með þrjú mörk er Sporting sendi skýr skilaboð Danir úr leik á HM Taphrina HK á enda eftir dramatískar lokasekúndur Tíu íslensk mörk er Magdeburg vann Melsungen Haukar jafna Val að stigum á toppi deildarinnar FH sótti sigur í greipar ÍBV og Valur vann spennutrylli Benedikt með fjögur mörk í öruggum sigri Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Norska landsliðið flaug áfram í undanúrslit Stórleikur Birgis Steins í sex marka sigri Fjögur mörk Elvars dugðu skammt í þungu tapi Þýska stálið flaug áfram í undanúrslit Toppkonur Íslands á HM í handbolta 2025 Kom færandi hendi eftir að hafa skotið ljósmyndarann niður Stjörnur Kolstad þurfa að taka á sig launalækkun Átta liða úrslitin á HM klár Ótrúlegir yfirburðir Noregs og Danir enduðu líka á toppnum Ýmir lenti í íslensku hakkavélinni og enn bíður Blær Skýrsla Ágústs: Ekki lengur reynslulausar Sjá meira