Víkingur Ólafsvík vann 2-0 sigur á Aftureldingu í Ólafsvík í kvöld. Sigurinn var fyrsti sigur Ólafsvíkur í Inkasso-deildinni síðan 13. júní.
Harley Willard kom Ólafsvíkingum yfir á 54. mínútu en átta mínútum síðar tvöfaldaði Sallieu Capay Tarawallie. Lokatölur 2-0.
Víkingur Ólafsvík er í fjórða sæti deildarinnar með sautján stig, fimm stigum frá toppliði Fjölnis, en Fjölnir á þó leik til góða.
Afturelding er í tíunda sæti deildarinnar með níu stig.

