Óðinn markahæstur í tvígang og átti tilþrif umferðarinnar Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. mars 2019 17:30 Óðinn Þór Ríkharðsson skorar með skemmtilegu skoti framhjá Niklas Landin. mynd/GOG
Óðinn Þór Ríkharðsson, landsliðshornamaður í handbolta og leikmaður GOG í Danmörku, skoraði sex mörk og var markahæstur í fjögurra marka tapi, 26-22, á móti þýska stórliðinu Kiel í EHF-bikarnum í gær. Þetta var annar leikur liðanna í röð í riðlakeppni EHF-bikarsins en Kiel vann fyrri leikinn stórt á heimavelli, 37-23, þar sem að Óðinn var sömuleiðis markahæstur sinna manna með sex mörk. Hann skoraði því tólf mörk í tveimur leikjum á móti lærisveinum Alfreðs Gíslasonar. Óðinn gerði enn betur því eitt marka hans var einstaklega fallegt en hann skoraði þá með því að kasta boltanum aftur fyrir bak þegar að hann var í hraðaupphlaupi, einn á móti Niklas Landin í marki Kiel. Markið var útnefnt sem tilþrif fjórðu leikviku í EHF-bikarnum eins og sjá má hér að neðan. Þetta skot er orðinn einskonar kennimerki Óðins en þessi tilþrif bauð hann nokkrum sinnum upp á í Olís-deildinni í fyrra og þá hefur hann skorað nokkrum sinnum með sama hætti í dönsku úrvalsdeildinni í vetur. Þrátt fyrir töpin tvö á móti Kiel er GOG í fínum málum í D-riðli EHF-bikarsins eftir sigra á útivelli gegn Granollers frá Spáni og Selfoss-bönunum í Azoty-Pulawy á heimavelli en danska liðið á nú eftir seinni leikina á móti þeim. Kiel er búið að vinna riðilinn enda er það með fullt hús stiga eftir fjóra leiki. Það er því komið í Final Four sem fer einmitt fram í Sparibauknum í Kiel en GOG þarf líklega bara einn sigur í næstu tveimur leikjum til að komast í átta liða úrslitin.
Handbolti Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Fleiri fréttir Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Sjá meira