Náði að fara yfir Ermarsundið á svifbretti Birgir Olgeirsson skrifar 4. ágúst 2019 08:19 Franky Zapata á svifbrettinu sínu. Vísir/AP
Franski uppfinningamaðurinn Franky Zapata náði því að verða sá fyrsti sem fer á svifbretti yfir Ermasundið. Hinn fertugi Zapata lagði af stað frá Sangatte í Frakklandi í morgun og var kominn til Dover tæpum klukkutíma síðar. Svifbrettið er búið fimm túrbínum sem ganga fyrir steinolíu en brettið getur náð allt að 190 kílómetra hraða á klukkustund. Zapata, sem státar af glæstum ferli sem keppandi á sæþotu, mistókst þegar hann reyndi við Ermarsundið í fyrsta skiptið 25. júlí síðastliðinn. Þá lenti hann í vandræðum þegar hann hugðist taka eldsneyti.Frá ferðalagi Frakkans yfir ErmasundiðVísir/APÍ tilrauninni sem tókst var notast við stærri bát sem var búinn stærri lendingarpalli fyrir franska uppfinningamanninn svo hann gæti lent þar vandræðalaust og tekið eldsneyti. Ferðalagið yfir Ermarsundið var um 35,4 kílómetrar, en um er að ræða svokallað Doversund, sem er syðsta leiðin milli Frakklands og Englands. Zapata vakti mikla athygli á Bastilludeginum, þjóðhátíðardegi Frakka, í París í síðasta mánuði þar sem tók þátt í hersýningu á svifbrettinu. Brettið er á stærð við hjólabretti en eldsneytið geymir hann í bakpoka.
Bretland England Frakkland Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira