Los Angeles Lakers nældi í yngri bróðir Giannis Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2019 19:45 Antetokounmpo bræðurnir allir samankomnir í sínu fínasta. Mynd/Instagram/kostas__ante13
Kostas Antetokounmpo er kominn til Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta en félagið ákvað að semja við hann eftir að leikmaðurinn missti samning sinn hjá Dallas Mavericks. Kostas Antetokounmpo er 21 árs gamall og yngri bróðir Giannis Antetokounmpo sem var kosinn mikilvægasti leikmaður NBA deildarinnar á síðustu leiktíð. Kostas er þremur árum yngri en Giannis en Kostas er 208 sentímetrar á hæð eða þremur sentimetrum minni en eldri bróðir sinn. Kostas Antetokounmpo kom bara við sögu í einum leik hjá Dallas Mavericks á síðustu leiktíð og skoraði samtals tvö stig á ellefu mínútum en lék þess í dag með NBA-G deildarliðinu Texas Legends. Þar var hann með 10,6 stig og 6,1 frákast að meðaltali í 40 leikjum. Það er ljóst að Kostas er enginn Giannis Antetokounmpo sem var með 27,7 stig, 12,5 fráköst og 5,9 stoðsendingar að meðaltali í leik með liði Milwaukee Bucks á síðustu leiktíð.The Los Angeles Lakers have claimed Kostas Antetokounmpo off free agency waivers, sources tell @TheAthleticNBA@Stadium. — Shams Charania (@ShamsCharania) July 21, 2019 Lakers gerir svokallaðan „two-way deal“ við Kostas Antetokounmpo og líta því á hann sem verkefni. Hann mun því væntanlega spila eitthvað áfram í NBA-G deildinni en lið Lakers þar er South Bay Lakers. Giannis Antetokounmpo hefur tekið gríðarlegum framförum á hverju tímabili með Milwaukee Bucks en á fyrsta tímabilinum, 2013-14, var Giannis með 6,8 stig, 4,4 fráköst og 1,9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann hefur nú hækkað meðalskor sitt á fimm tímabilum í röð eða úr 6,8 stigum í leik (2013-14) í 12,7 (2014-15), í 16,9 (2015-16), í 22,9 (2016-17), í 26,9 (2017-18) og loks upp í 27,7 stig í leik á síðustu leiktíð. Þriðji bróðirinn og sá elsti, Thanasis Antetokounmpo, er nú orðinn liðsfélagi Giannis hjá Milwaukee Bucks. Hann lék áður með Panathinaikos í Grikklandi í tvö ár.Kostas Antetokounmpo reportedly signs two-way deal with Lakers. #LightYears Written by: @DanDuangdao.https://t.co/FNYj258Q6dpic.twitter.com/WXUCwboYYj — Lakers Nation (@LakersNation) July 21, 2019
NBA Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira