Trú Ballarin mun hafa áhrif á stjórnarhætti WOW Air Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Sunna Sæmundsdóttir skrifa 6. september 2019 20:49 Michelle Ballarin fór yfir plön sín á blaðamannafundinum í dag. Vísir
Michele Ballarin, stjórnarformaður USAerospace Associates LLC, segir að búið sé að greiða helming kaupverðs fyrir búnað úr þrotabúi WOW air. Hinn helmingurinn verði greiddur í næstu viku þegar tæknideild USAeurospace verður búin að staðfesta að allur búnaðurinn sé í lagi. Þetta segir Ballarin sem ræddi við fréttastofu að loknum blaðamannafundi á Grillinu á Hótel Sögu í dag. Hún vildi ekki upplýsa um kaupverðið. Jómfrúrrflug í október Áætlað er að jómfrúrrflug nýs WOW Air verði flogið í október frá Washington DC í Bandaríkjunum til Dallas, þaðan til Keflavíkur og svo aftur til Washington. Stefnt er á að bjóða upp á flug frá Íslandi til meginlands Evrópu og Bandaríkjanna. Ballarin segir dagleg flug verða á milli Keflavíkur og Washington. Tvær flugvélar verði í notkun flugfélagsins fyrst um sinn og fjöldi flugvéla muni svo aukast í samræmi við eftirspurn. Þá segist Ballarin gera ráð fyrir því að flugfélagið muni fljúga með tíu til tólf flugvélar þegar starfsemin verði komin á flug. Búast megi við að eftirspurn eftir lággjalda flugferðum verði mikil. Sætanýting í WOW air hafi verið 93 prósent sem sé mjög hátt hlutfall. Fylgja þurfi eftirspurn og fari fjöldi véla eftir henni. Félagið geri ráð fyrir á milli tíu og tuttugu vélum. Sá fjöldi véla muni líklegast nást um miðbik næsta árs.Útlit WOW Air mun ekki koma til með að breytast Ballarin segir að fylgja þurfi óskum Íslendinga um það hvert verði flogið. Mikil eftirspurn sé eftir flugferðum til Bretlands en auk þess verði flogið til allra helstu höfuðborga Evrópu; Parísar, Lundúna, Berlínar og Rómar svo einhverjar séu nefndar. Flogið verður til nokkurra staða í Bandaríkjunum. Ballarin segir áhersluna vera lagða á austurströnd landsins fyrst um sinn. Flogið verði svo innan Bandaríkjanna á „öðru stigi“ félagsins eins og Ballarin orðar það. Ekki stendur til að breyta neinu er kemur að útlitinu. Notast verður við sömu búningana og sama nafn. Ballarin segir það hafa verið gert á réttan hátt í fyrra skiptið og að fólk sakni fjólubláa litarins á Keflavíkurflugvelli.Farþegar munu koma til með að berja fjólubláar vélar WOW Air augum á ný í október.Vísir/VilhelmHún segist ekki hafa áhyggjur vegna orðsporsins sem WOW Air hefur. Viðskipti séu alltaf erfið og flókin, sama á hvaða sviði þau séu og hlutir gerist í fyrirtækjum sem ekki er hægt að hafa stjórn á. „Það er margt gott við WOW, þar á meðal hvernig félaginu var stjórnað, upplifunin í hverju flugi, áfangastaðirnir, litirnir og hönnunin á flugvélunum. Ég held ekki að breyta eigi miklu og nafnið er nafnið, þetta er frábært nafn. Við viljum byggja ofan á það og færa WOW Air mikla velgengni,“ segir Ballarin.WOW Air setustofa í Leifsstöð fyrir alla farþega Til stendur að hefja miðasölu í næstu viku. Heimasíðan verði vonandi komin í loftið og nothæf svo fólk geti byrjað að bóka flug. WOW air muni bæði notast við Airbus og Boeing vélar. Unnið verður eftir svipuðu módeli og WOW hið gamla gerði. Lögð verður áhersla á að flugin verði enn lággjalda og segir Ballarin að engin ástæða sé til að rukka farþega of mikið fyrir það eitt að fljúga. Fólk eigi að geta flogið oft og ekki eiga að þurfa að skipuleggja ferðalög í langan tíma. Þrátt fyrir að litlar breytingar verði á WOW Air standa til breytingar á vegum félagsins á Keflavíkurflugvelli. Ballarin segist vilja geta haft setustofu fyrir alla farþega WOW á Keflavíkurflugvelli svipaðar þeim sem farþegar á fyrstu farrýmum fá jafnan aðgang að. Viðræður við Isavia séu þegar hafnar varðandi þetta. Þá verði matur og drykkir um borð gjaldfrjáls og sé það einn liður í því að gera flug skemmtileg á ný.WOW Air alþjóðleg flugfélag Ballarin segir WOW verða alþjóðlegt flugfélag. Til standi að félagið hafi flugrekstrarleyfi frá bæði bandarískum- og íslenskum yfirvöldum. Þá verði félagið með skrifstofur bæði hér á landi og vestanhafs. Ballarin minnir á að félagið sem hafi keypt eignirnar úr þrotabúi WOW air sé íslenskt. Hafi það verið sérstaklega gert til að halda íslenskum anda í fyrirtækinu.Verið sé að setja saman teymi sem mun fara með stjórn fyrirtækisins hér á Íslandi og mun það verða tilkynnt fljótlega hverjir verði í þeim hópi. Ballarin nefnir þó að fólkið sem komið sé í hópinn kunni sitt fag og sé ákaft í að sjá fyrirtækinu ganga vel. Stór hluti starfseminnar verður vöruflutningur. Ballarin segist vilja flytja íslenskar vörur vestur um haf þar sem mikið sé um vandaðar vörur héðan, bæði matvörur og svo til dæmis snyrtivörur. Staðsetning Íslands bjóði upp á mikinn vöruflutning á milli heimsálfa. Tvær flugvélar á vegum WOW verði sérstakar vöruflutningavélar. „Þær bíða eftir að geta komið og sótt fisk núna,“ segir Ballarin. Þá segir hún að vilji sé fyrir því að flytja íslenskan fisk og annað sjávarfang til BandaríkjannaTrúin mun hafa áhrif á starfsemi flugfélagsins Trúarleg gildi eru í hávegum höfð hjá Ballarin sem er dyggur stuðningsmaður Donald Trump Bandaríkjaforseta. „Við trúum öll á eitthvað og það skiptir okkur máli, við getum kallað það trú eða almannaheill. Það snýst allt um sanngirni er það ekki? Það snýst um að gera hið rétta og að þjóna öðrum vel,“ segir Ballarin. Hún segir að trú hennar muni hafa áhrif á starfsemi flugfélagsins bæði þegar það kemur að starfseminni og hvernig komið verði fram við farþega. Þá skipti mestu máli að vera sanngjarn. Trúin muni ekki vera augljóslega sýnileg út á við en hafa gríðarleg áhrif á heimspeki- og stefnu fyrirtækisins og hvernig fyrirtækið mun starfa.
Airbus Bandaríkin Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur WOW Air Tengdar fréttir Aðstandendur WAB air ekki af baki dottnir Kaup Michele Roosevelt Edwards, eða Michele Ballarin eins og hún er jafnan kölluð, á eignum þrotabús WOW air hafi ekki áhrif. 6. september 2019 14:47 Þjóðin stendur nú einkar vel að vígi Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og stjórnarformaður Icelandair Group, sér fyrir sér að bætur frá Boeing til flugfélagsins verði að hluta til í formi reiðufjár. Bílasala hefur ekki aukist þótt kjarasamningar séu í höfn og óviss varðandi WOW Air er frá. 28. ágúst 2019 09:45 Svona var blaðamannafundur Ballarin Sú bandaríska hefur boðað til blaðamannafundar á Hótel Sögu í dag. 6. september 2019 11:33 Fyrsta flugið verður í október, gefur ekki upp kaupverðið og leggur áherslu á góðan mat Endanlegt samkomulag hefur náðst á milli US Aerospace Associates LLC og skiptastjóra þrotabús WOW air um kaup félagsins á þeim eignum þrotabúsins sem tilheyra WOW vörumerkinu. 6. september 2019 14:00 Mest lesið Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Innlent Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Erlent Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Innlent Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Erlent Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Innlent Fleiri fréttir Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Hlaut stunguáverka og var fluttur á sjúkrahús Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Hjólar hringinn fyrir Hringinn: Gengið vel en leiðin norður „mjög mikið pain“ Forsetinn og borgarstjórinn í Sprengisandi Réðst að hópi drengja í sundlaug Matsgerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir áhrifum slævandi lyfja Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Sjá meira
Aðstandendur WAB air ekki af baki dottnir Kaup Michele Roosevelt Edwards, eða Michele Ballarin eins og hún er jafnan kölluð, á eignum þrotabús WOW air hafi ekki áhrif. 6. september 2019 14:47
Þjóðin stendur nú einkar vel að vígi Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi og stjórnarformaður Icelandair Group, sér fyrir sér að bætur frá Boeing til flugfélagsins verði að hluta til í formi reiðufjár. Bílasala hefur ekki aukist þótt kjarasamningar séu í höfn og óviss varðandi WOW Air er frá. 28. ágúst 2019 09:45
Svona var blaðamannafundur Ballarin Sú bandaríska hefur boðað til blaðamannafundar á Hótel Sögu í dag. 6. september 2019 11:33
Fyrsta flugið verður í október, gefur ekki upp kaupverðið og leggur áherslu á góðan mat Endanlegt samkomulag hefur náðst á milli US Aerospace Associates LLC og skiptastjóra þrotabús WOW air um kaup félagsins á þeim eignum þrotabúsins sem tilheyra WOW vörumerkinu. 6. september 2019 14:00