Öruggt hjá Keflavík á heimavelli Anton Ingi Leifsson skrifar 20. nóvember 2019 20:47 Daniella Morillo átti flottan leik í kvöld. vísir/bára
Keflavík lenti ekki í neinum vandræðum með Snæfell á heimavelli er liðin mættust í síðasta leik 7. umferðar Dominos-deildar kvenna en lokatölur 89-66. Keflavík vann alla fjóra leikhluta leiksins en heimastúlkur byrjuðu af krafti. Unnu fyrsta leikhlutann 23-17 og voru svo 52-37 yfir er liðin gengu til búningsherbergja. Í síðari hálfleik freistuðu gestirnir úr Stykkishólmi að minnka muninn en heimastúlkur stóðu af sér áhlaupin og héldu spilunum vel að sér. Öflugur sigur þeirra. Daniela Wallen Morillo gerði 31 stig fyrir Keflavík. Hún tók þar að auki tólf fráköst og gaf átta stoðsendingar. Írena Sól Jónsdóttir kom næst með þrettán stig, þrjú fráköst og tvær stoðsendingar. Chandler Smith og Anna Soffía Lárusdóttir gerðu sitthvor fimmtán stigin fyrir gestina. Chandler tók að auki ellefu fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Keflavík er því komið með átta stig og er með jafn mörg stig og Haukar og Skallagrímur í 3. til 5. sæti deildarinnar. Snæfell er með fjögur stig í 6. sætinu.Keflavík-Snæfell 89-66 (23-17, 29-20, 16-15, 21-14)Keflavík: Daniela Wallen Morillo 31/12 fráköst/8 stoðsendingar/6 stolnir, Irena Sól Jónsdóttir 13, Katla Rún Garðarsdóttir 12, Anna Ingunn Svansdóttir 10, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 10/5 fráköst, Elsa Albertsdóttir 6, Þóranna Kika Hodge-Carr 4/4 fráköst, Kamilla Sól Viktorsdóttir 3, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 0/6 fráköst. Snæfell: Chandler Smith 15/11 fráköst, Anna Soffía Lárusdóttir 15, Veera Annika Pirttinen 11/10 fráköst, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 9/7 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 9/8 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir 5, Tinna Guðrún Alexandersdóttir 2, Emese Vida 0/9 fráköst.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Körfubolti Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Handbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Fleiri fréttir Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils Sjá meira