Hönd skosks ferðamanns fannst í maga hákarls Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. nóvember 2019 15:47 Hákarlinn er af tegund tígrisháfa. Mynd er úr safni. Vísir/Getty
Líkamsleifar skosks ferðamanns, sem ekkert hefur spurst til síðan hann fór að snorkla við strendur frönsku eyjarinnar Réunion um helgina, hafa fundist í maga hákarls. Í frétt breska dagblaðsins Guardian segir að maðurinn hafi verið 44 ára. Hann hvarf á laugardag og í kjölfarið voru fimm hákarlar veiddir í grennd við eyjuna. Hönd mannsins fannst við krufningu í maga eins hákarlsins, sem staðarmiðlar segja tígrisháf. Borin voru kennsl á höndina með aðstoð eiginkonu mannsins, sem þekkti giftingarhring mannsins sem enn var á fingri hans. Ekki hefur verið hægt að skera úr um það hvort maðurinn hafi látist við árás hákarlsins eða drukknað og síðar verið étinn. Eyjan er í Indlandshafi, austan við afrísku eyjuna Madagaskar, og er vinsæll áfangastaður brimbrettakappa. Ágangur hákarla varð þó til þess að brimbrettabrun var að hluta bannað á eyjunni. Tveir hafa þegar látist í hákarlaárás við Réunion það sem af er ári. Veiðimaður lést í janúar eftir að hákarl beit af honum annan fótlegginn og þá lést brimbrettakappi í maí.
Frakkland Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Sjá meira