Innlent

Þor­gerður Katrín segir það skjóta skökku við að VG bjóði að­eins upp á vegan mat á lands­fundi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Þorgerður Katrín segir það skjóta skökku við að VG bjóði ekki upp á kjöt á landsfundi flokksins.
Þorgerður Katrín segir það skjóta skökku við að VG bjóði ekki upp á kjöt á landsfundi flokksins. vísir
Landsfundur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hófst í gær en fundurinn er haldinn á Grand hóteli í Reykjavík og mun standa yfir alla helgina.

Umhverfis- og loftslagsmál eru rauði þráðurinn á þessum landsfundi, sem er sá ellefti sem flokkurinn heldur. Upp úr hádegi í dag verða pallborðsumræður um loftslagsmál og verða gestir pallborðsins einstaklingar úr atvinnulífi, umhverfisfræðum og verkalýðshreyfingum.

Þá tilkynnti flokkurinn að allar veitingar yrðu kjötlausar og verður enginn pappír á fundinum heldur.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir kjötleysið skjóta skökku við. „Þetta er sami flokkur og hefur verið í fararbroddi og beinlínis í samkeppni við hina Framsóknarflokkana um að framleiðslutengja landbúnað upp á tugi milljarða. Aðallega í þágu milliliðanna en ekki bænda, neytenda og hvað þá náttúrunnar sjálfrar,“ skrifar Þorgerður á Facebook-síðu sinni.

Hún segir margt benda til að vegan mataræði hafi jákvæð áhrif á heilsu og umhverfi og geti minnkað kolefnisfótspor. Hún velti fyrir sér hvort þetta sé kaldhæðni, hugsunarleysi eða „bara leiktjöld.“

„Framleiðið, framleiðið, framleiðið hafa verið skilaboðin frá VG í gegnum árin þannig að heilu kjötfjöllin myndast. Það sem við gátum ekki borðað fór síðan í útflutning enda framleiðslan 150% umfram þörfina á innanlandsmarkaði.“

Þá segir hún miklu nær hefði verið ef VG hefðu borðað kjöt alla helgina, kvölds og morgna hefði flokkurinn viljað vinna gegn kolefnisfótsporinu. Þá hefði flokkurinn síðan átt að gefa frá sér yfirlýsingu um að þau ætluðu að koma „með okkur“ í að breyta landbúnaðarstefnunni.

„Allt lítur þetta vel út á yfirborðinu hjá VG en þegar betur er að gáð fara hljóð og mynd ekki saman. Og ekkert breytist,“ skrifar Þorgerður.

Maturinn á landsfundinum er þó ekki aðeins vegan, en boðið er upp á vegan mat en einnig er boðið upp á fisk. Þá segir flokksmaður í samtali við fréttastofu að einhverjar kjötvörur séu einnig á boðstólnum þrátt fyrir tilkynningu flokksins um að fundurinn yrði kjötlaus. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×