Erlent

Að­stæður á Bahama­eyjum erfiðar fyrir björgunar­teymi

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Þórgnýr Einar Albertsson skrifa
Notast hefur verið við sæþotur til að koma fólki í öruggt skjól.
Notast hefur verið við sæþotur til að koma fólki í öruggt skjól. ap/Ramon Espinosa
Björgunarteymi á Bahamaeyjum hafa varað við því að ástandið sé afar slæmt og að mikil þörf sé á erlendri mannúðaraðstoð. Þúsundir heimila séu annað hvort alvarlega skemmd eða í rústum, sjúkrahús séu í heljargreipum og fólk sé fast uppi á háaloftum húsa.

Fellibylurinn Dorian hélt áfram að valda tjóni á Bahamaeyjum í dag og í morgun þó styrkur hans hafi minnkað til muna og telst nú þriðja stigs fellibylur. Ríkisstjóri Georgíu-ríkis Bandaríkjanna hefur fyrirskipað allsherjar rýmingu strandlengjunnar og í nágrannaríkjunum hefur fólk verið að undirbúa sig fyrir storminn.

Bahamaeyjar eru á floti, íbúar sitja víða fastir vegna flóða, fjöldi er særður og í það minnsta fimm eru látin vegna þriðja stigs fellibylsins Dorian sem hékk enn yfir eyjunum í morgun.

Sjálfboðaliði leitar eiganda hunds sem hann bjargaði.ap/Ramon Espinosa
Samkvæmt bandarísku fellibyljamiðstöðinni NHC er búist við því að Dorian gangi ekki á land í Flórída, eins og áður hafði verið óttast um. Stormurinn á hins vegar að þokast með fram strandlengjunni í kvöld og vera kominn upp að Georgíu undir morgun. Þaðan heldur Dorian áfram til Suður- og Norður-Karólínu þar sem íbúar hafa verið í óða önn að undirbúa sig.

 „Hér ríkir alger sundrung. Ástandið er svo slæmt að það minnir helst á heimsenda. Það lítur út eins og hér hafi sprungið sprengja,“ sagði Lia Head-Rigby, sjálfboðaliði í samtökum sem sjá um björgunaraðgerðir eftir fellibylji. Lia flaug yfir eyjuna Abaco sem er ein verst leikna eyjan. „Við getum ekki reist á ný það sem var þarna áður. Við þurfum að byrja frá grunni.“

Hún segir samstarfsmann sinn á Abaco hafa sagt sér að „margir fleiri væru látnir“ og að verið væri að safna líkunum saman.

Björgunarstarf hefur gengið hægt þar sem aðstæður eru enn of slæmar fyrir björgunarteymi en vindurinn nær enn um 60 m/s. Í gær náði hann hátt í 90 m/s. Enn rignir mikið á eyjunum og þarf fólk víða að vaða vatn upp að öxlum til að komast ferða sinna.

„Við upplifum nú sögulegan harmleik víða á Norður-Bahamaeyjum. Við einbeitum okkur nú að leit, björgun og endurheimt,“ sagði Hubert Minnis, forsætisráðherra Bahamaeyja, fyrr í dag.

Seint á þriðjudagskvöld fóru björgunarteymi að koma fólki í öruggt skjól á Grand Bahama með aðstoð sæþota, báta og jafnvel risavaxinna jarðýta, sem ferjuðu börn og fullorðna í skóflunni.


Tengdar fréttir

Fordæmalaust hamfaraveður

Þök tættust af húsum og bílar tókust á loft. Þá hafa öldur við strandlengjuna verið fimm til sjö metrum hærri en þekkist, sem valdir hefur flóðum víða.

Dorian orðinn fjórða stigs fellibylur

Fellibylurinn Dorian, sem stefnir á Bahamaeyjar og Flórída næsta sólarhringinn er orðinn fjórða stigs fellibylur og því metinn gríðarlega hættulegur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×