Lífið

Brauð­tertu­keppni, götu­bita­há­tíð og fjöl­skyldu­jóga meðal dag­skrár­liða á Menningar­nótt

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Menningarnótt verður haldin hátíðlega næsta laugardag.
Menningarnótt verður haldin hátíðlega næsta laugardag. aðsend
Menningarnótt verður haldin næsta laugardag og mun miðborgin þá breytast í suðupott menningar og lista. Hátt í 250 viðburðir verða á dagskrá Menningarnætur í ár og aldrei hafa fleiri viðburðir verið í boði.

Nokkrir dagskrárliðir Menningarnætur

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram í 36. skipti í ár og verður hlaupið frá og að Lækjargötu. Fimm mismunandi vegalengdir verða í boði og hægt er að skrá sig hér. Hlaupið hefst klukkan 08:40 og mun því ljúka um miðjan daginn.

Skemmtiskokk verður einnig í boði en það hefst klukkan 12:15 og verður hægt að velja um tvær vegalengdir, þrjá kílómetra og sex hundruð metra.

Hátíðin verður sett klukkan 13:00 á Hagatorgi af Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra Reykjavíkur. Þegar setningunni er lokið verður dansdagskrá á Hagatorgi og þar mun meðal annars þjóðdansahópur frá Assam héraði á Indlandi stíga á stokk. Danshópurinn er hér á landi sérstaklega í tilefni Menningarnætur.

Brauðtertusamkeppni fer fram í ár í Listasafni Reykjavíkur og mun standa yfir frá klukkan 14:00 til 16:00. Þar verður keppt í þremur flokkum: Fallegasta brauðtertan, Frumlegasta brauðtertan og Bragðbesta brauðtertan. Þeir sem vilja taka þátt geta skráð sig með því að senda póst á braudtertanlifir@gmail.com.

Haldin verður brauðtertukeppni á Menningarnótt í ár.aðsend
Loft Slag eru samstöðutónleikar gegn loftslagsvá sem haldnir verða í samstarfi við Útvarp 101 í bílastæðahúsinu Traðarkoti. Tónleikarnir hefjast klukkan 18:00 og munu hljómsveitirnar FM Belfast og Hermigervill stíga á svið klukkan 20:00. Á tónleikunum verða bar og kaffihús á vegum Tíu Sopa og Kvarnar.

Fjölskyldujóga verður haldið í Borgarbókasafninu í Grófinni á milli klukkan 15:00 og 16:00. Þar getur öll fjölskyldan komið saman og gera saman æfingar.

Tónaflóð Rásar 2 fer fram í 22. skiptið í ár við Arnarhól. Það hefst klukkan 19:45 og lýkur klukkan 23:00. Þar munu ClubDub, GDRN og Auður, Vök, Valdimar Hjaltalín og Stjórnin stíga á stokk.

Bylgjan býr upp á Garðapartý í Hljómskálagarðinum og verður boðið upp á fríar veitingar á meðan birgðir endast. Tónlistarveislan byrjar klukkan 18:30 og mun ljúka 22:45 sem gefur fólki nægan tíma til að rölta að Kvosinni til að koma sér fyrir fyrir flugeldasýninguna. Meðal þeirra sem munu stíga á stokk verða Jón Jónsson og Friðrik Dór, Nýdönsk og Herra Hnetusmjör.

Hip hop hátíð verður haldin í fjórða skipti í ár og verður nú haldin á Miðbakkanum. Hún hefst klukkan 15:00 og lýkur klukkan 19:00. Hægt verður að fá sér matarbita á Götubitanum sem mun snúa aftur á Miðbakka á Menningarnótt. Þar mun fjöldi matarvagna bjóða upp á dýrindis veitingar og varða á staðnum frá klukkan 13:00 til 23:00.

Árleg flugeldasýning Menningarnætur hefst að venju klukkan 23:00 og mun vara í um það bil 10 mínútur.

Samgöngur og aðgengi

Miðborgin verður nánast öll lokuð bílaumferð frá því klukkan 7 morguninn 24. ágúst og þar til klukkan 2 eftir miðnætti þann 25. ágúst. Þá verður lokað fyrir bílaumferð vestan Kringlumýrarbrautar frá klukkan 20:00. Gestir Menningarnætur eru hvattir til að kynna sér götulokanir vel og nýta sér almenningssamgöngur.

Frítt verður í Strætó Menningarnótt og verður keyrt eftir hefðbundinni leiðartöflu þar til klukkan 22:30 um kvöldið. Þá mun strætó ganga til klukkan 01:00 frá Sæbraut um leið og athöfn lýkur við Arnarhól.

Sérstök bílastæði verða fyrir fatlaða og hreyfihamlaða á Skúlagötu, Túngötu og við Tækniskólann. Auk þess verður hægt að taka leigubíl inn á Skólavörðuholt, Skúlagötu, Túngötu og BSÍ. Þá verða sérstök salerni fyrir fatlaða á hátíðarsvæðinu.


Tengdar fréttir

Lífið á Hverfisgötu

Blaðamaður heimsótti litla saumastofu, sælkeraverslun og veitingastað á Hverfisgötu og ræddi við eigendur um reksturinn og lífið. Framkvæmdir í götunni hafa dregist á langinn og haft áhrif á reksturinn.

Götu­lokanir á Menningar­nótt

Búið er að birta götuskipulag fyrir Menningarnótt þar sem hægt er að sjá hvaða götur veða lokaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×