Golf

Handtekinn fyrir að pissa á flugvélargangi og áreita sofandi konu í sama flugi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Thorbjorn Olesen vbrosti örugglega ekki þegar breska lögreglan tók á móti honum við útgöngudyrnar í flugvélinni.
Thorbjorn Olesen vbrosti örugglega ekki þegar breska lögreglan tók á móti honum við útgöngudyrnar í flugvélinni. Getty/ Andrew Redington
Dauðadrukkinn danskur kylfingur gerðist sekur um saknæma hegðun á leið sinni frá Bandaríkjunum til Englands. Hann gæti verið á leið í fangelsi.

Danski atvinnukylfingurinn Thorbjorn Olesen var handtekinn fyrr í þessari viku eftir skammarlega hegðun í flugi frá Tennessee í Bandaríkjunum til London í Englandi. Fox Sport segir meðal annars frá.





Bandarískir og enskir fjölmiðlar eru meðal þeirra sem segja frá háttalagi Thorbjorn Olesen í þessu flugi en hann er á 62. sæti yfir bestu kylfinga heims. Thorbjorn Olesen er eins og er næstefsti danski kylfingurinn á heimslistanum.

Olesen var að ferðast með flugi British Airways frá Memphis til Heathrow flugvallar á mánudaginn og var blindfullur og blekaður í fluginu. Hann hafði verið að keppa á WGC-FedEx St. June Invitational golfmótinu á PGA-mótaröðinni.

Hinn 29 ára gamli Olesen var handtekinn við komuna til London. Hann er meðal annars sakaður um að hafa pissað á flugvélaganginn og áreitt sofandi konu kynferðislega í fluginu.





Ian Poulter, liðsfélagi Olesen í evrópska Ryderliðinu frá 2018, reyndi að róa Olesen niður í fluginu en eftir að Poulter fór að sofa þá hélt Olesen áfram. Poulter sagði Independent frá því að hann vissi ekki af hegðun félaga síns fyrr en að lögreglan mætti þeim í flugvéladyrunum og handtók hann.

Scotland Yard staðfesti handtöku manns í þessu flugi og að hann hafi verið handtekinn vegna gruns um kynferðisbrot, ölvun um borð í flugvél og fyrir hlýða ekki fyrirmælum áhafnarmeðlima.

British Airways hefur líka staðfest þessar fréttir og í yfirlýsingu frá flugfélaginu segir að svona hegðun verði aldrei liðin. Farþegar og áhöfn eiga að geta notið flugs án þess að eiga á hættu að verða fyrir svívirðingum eins og þarna áttu sér stað að hálfu Thorbjorns Olesen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×