Ástand drengsins alvarlegt en líðan hans stöðug Sylvía Hall skrifar 5. ágúst 2019 11:29 Drengnum var hent fram af útsýnispallinum sem er á tíundu hæð. Vísir/Getty
Sex ára gömlum dreng var hent fram af útsýnispalli á Tate listasafninu í Lundúnum í gær og féll hann fimm hæðir áður en hann lenti á þaki safnsins. Sautján ára piltur hefur verið handtekinn grunaður um verknaðinn en atvikið átti sér stað rétt fyrir klukkan 15 að staðartíma. Á vef BBC kemur fram að ástand drengsins sé alvarlegt eftir fallið en líðan hans er stöðug. Samkvæmt talsmanni lögreglu er þó talið líklegt að drengurinn lifi af en unnið er að því að rannsaka tildrög atviksins.Sjá einnig: Henti sex ára dreng niður af tíundu hæð Að sögn vitnis heyrðist hár dynkur og í kjölfarið hafi kona öskrað: „Hvar er sonur minn, hvar er sonur minn?“. Viðstaddir hópuðust í kringum karlmann sem var staddur á útsýnispallinum sem var furðu rólegur yfir atvikinu á meðan aðrir forðuðu sér út. Pilturinn sem er í haldi var handtekinn vegna gruns um tilraun til manndráps en lögregla segir ekkert benda til þess að hann hafi þekkt drenginn sem hann kastaði niður af útsýnispallinum. Hann er enn í haldi lögreglu. Lögreglu var gert viðvart klukkan 14:40 að staðartíma og voru viðbragðsaðilar mættir á vettvang skömmu síðar. Hlúð var að drengnum á vettvangi áður en hann var fluttur á sjúkrahús. Safnið verður opið í dag en útsýnispallurinn verður lokaður fyrir gestum.
Bretland England Tengdar fréttir Henti sex ára dreng niður af tíundu hæð Sautján ára piltur hefur verið handtekinn grunaður um að hafa hent sex ára gömlum dreng fram af útsýnispalli á Tate listasafninu í Lundúnum í dag. 4. ágúst 2019 19:04 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira
Henti sex ára dreng niður af tíundu hæð Sautján ára piltur hefur verið handtekinn grunaður um að hafa hent sex ára gömlum dreng fram af útsýnispalli á Tate listasafninu í Lundúnum í dag. 4. ágúst 2019 19:04