Erlent

Ró­hingjar verða fluttir á af­skekkta eyju

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Flóttamannabúðir Róhingja í Bangladess, Cox's Bazar.
Flóttamannabúðir Róhingja í Bangladess, Cox's Bazar. getty/Kazi Salahuddin Razu

Til standur að fyrstu flóttamenn Róhingja verði fluttir til eyjar, sem er í árósum Meghna árinnar í Bangladess, á næstu mánuðum segir utanríkisráðherra Bangladess. Áætlun Bengölsku ríkisstjórnarinnar um að flytja flóttamennina þangað hefur verið harðlega gagnrýnd.

Flóttamennirnir eru hátt í milljón talsins og flúðu herferð Mjanmarska hersins gegn þeim árið 2017. Margir þeirra búa í flóttamannabúðunum Cox‘s Bazar munu vera fluttir til eyjarinnar Bhasan Char, sem aðeins er hægt að komast að á bátum.

Margir mannréttindabaráttuhópar eru áhyggjufullir vegna áætlunarinnar og sérstaklega vegna þess hve eyjan er einangruð. Einnig eru flóð algeng og há tíðni hvirfilbilja á svæðinu. Það tekur rúma þrjá klukkutíma að sigla til meginlandsins og hafa Róhingjar ítrekað sagt að þeir vilji ekki fara þangað vegna öryggisleysis.

Shahrirar Alam, utanríkisráðherra Bangladess, sagði í samtali við Guardian að engin breyting yrði á áætluninni og ættu fyrstu flóttamennirnir að koma til eyjarinnar innan þriggja mánaða.

„Áætlunin er að gefa flóttamönnunum betra skjól,“ sagði Alam.

Bhasan Char eyjan.getty/Gallo Images

Hann sagði að þrátt fyrir tíða hvirfilbili og hækkandi sjávarmál myndi húsnæðið á eyjunni veita Róhingjunum betra skjól.

„Þarna er sérstakt hvirfilbiljaskýli og tjörn svo þau geti veitt fisk,“ sagði ráðherrann. „Einu atvinnumöguleikarnir fyrir Róhingjana eru fiskveiðar.“

Á mynd sem sýnir húsin á eyjunni má sjá rimla fyrir gluggunum. „Einn blaðamaður spurði mig hvers vegna þetta liti út eins og fangelsi en öll hús í Bangladess eru með svona öryggisrimla, þetta er mjög eðlilegt,“ sagði Alam.

„Með því að veita Róhingjunum skjól er forsætisráðherrann að búa til mjög háan siðferðisstall  og við myndum ekki gera neitt kjánalegt til að eyðileggja það.“

Alam sagði að ef fyrsti hópur flóttamannanna kæmi sér vel fyrir myndi það sama vera gert um alla eyjuna og fleira fólk flutt þangað.

„Ég vona að á næstu tveimur eða þremur mánuðum getum við byrjað að flytja fólk,“ sagði hann.

Hann sagði að ekki væri hægt að neyða fólk til að fara ef það vildi ekki.

Bhasan Char er um 30 km frá meginlandinu reis upp úr ánni fyrir aðeins tveimur áratugum. Áhyggjur hafa vaknað vegna þess hve takmarkað ferðafrelsi er á eyjunni.

Síðasta árið hafa góðgerðasamtök lagt áherslu á það hve erfitt og hættulegt það yrði að forða þúsundum einstaklinga frá eynni ef til náttúruhamfara kæmi.

Enn hafa fréttamenn ekki fengið að heimsækja Bhasan Char. Alam sagði að fyrst þyrftu sendimenn Sameinuðu þjóðanna að skoða aðstæðurnar.

„Við viljum að þau sjái staðinn fyrst og við munum aðeins flytja þau [flóttafólkið] þangað að því loknu. Við erum ekki að flýta þessu en við trúum því í alvöru að þetta sé eina lausnin.“

Alam bætti við að hann hefði ekki áhyggjur af flóðum.


Tengdar fréttir

Suu Kyi tjáir sig ekki um ódæðisverkin

Aung San Suu Kyi, ríkisráðgjafi Mjanmar og æðsti óbreytti leiðtogi landsins, hefur ekki viljað tjá sig um skýrslu mannréttinda­ráðs Sameinuðu þjóðanna um þá hrottalegu meðferð sem þjóðarbrot Róhingja hefur þurft að þola undanfarið ár af hendi mjanmarska hersins.

Fordæma fangelsun blaðamanna

Samtök bæði lögfræðinga og blaðamanna í Mjanmar afhentu Win Myint, forseta ríkisins, bréf í gær þar sem lýst var áhyggjum af sakfellingu og fangelsun tveggja blaðamanna Reuters.

Róhingjar funduðu með yfirvöldum

Ríflega 5.000 Róhingjar sem fastir eru á landsvæði sem liggur á milli Bangladess og Mjanmar, og hvorugt ríkið gerir tilkall til, fengu í gær heimsókn frá sendiboðum beggja ríkja.

Róhingjar geti ekki snúið aftur til heimkynna sinna

Ursula Mueller, aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna á sviði mannúðarmála, segir stjórnvöld í Mjanmar ekki reiðubúin til að taka á móti flóttafólki úr þjóðflokki Róhingja.

Þjóðarmorð á Róhingjum í Mjanmar

Mjanmarskir herforingjar voru í vikunni sakaðir um þjóðarmorð. Sagðir hafa brennt Róhingja inni í húsum þeirra og tekið af lífi í hrönnum. Mjanmarska ríkið neitar sök og fyrrverandi friðarverðlaunahafinn sem leiðir ríkisstjórnina hefur sagt um falsfréttir að ræða.

Sláandi umfjöllun Reuters vekur umtal

Sláandi umfjöllun blaðamanna Reuters um morð á tíu Róhingjum í Mjanmar leiðir til ákalls um alþjóðlega rannsókn á meintu þjóðarmorði. Tveir blaðamannanna voru sendir í fangelsi við vinnslu umfjöllunarinnar.

Ísland hækkar framlag vegna kynbundins ofbeldis á neyðarsvæðum

Ísland lýsti yfir fullum stuðningi í baráttunni gegn kynferðislegu og kynbundu ofbeldi á neyðarsvæðum á áheitaráðstefnu sem haldin var í Ósló í lok síðustu viku. Mikil áhersla er lögð á málaflokkinn í mannúðarstarfi Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×