Erlent

Mueller samþykkir að bera vitni fyrir þingnefnd

Kjartan Kjartansson skrifar
Markmið Mueller með óvæntum blaðamannafundi í síðasta mánuði virtist meðal annars að fyrirbyggja að hann yrði látinn bera vitni fyrir þingnefnd. Formenn tveggja nefnda hafa nú stefnt honum til þess.
Markmið Mueller með óvæntum blaðamannafundi í síðasta mánuði virtist meðal annars að fyrirbyggja að hann yrði látinn bera vitni fyrir þingnefnd. Formenn tveggja nefnda hafa nú stefnt honum til þess. Vísir/EPA
Robert Mueller, fyrrverandi sérstaki rannsakandi bandaríska dómsmálaráðuneytisins, hefur fallist á að bera vitni fyrir tveimur þingnefndum fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í næsta mánuði. Þar mun hann svara spurningum um rannsókn sína á afskiptum Rússa af forsetakosningunum árið 2016 og tilraunum Donalds Trump forseta til að hindra framgang réttvísinnar.

Demókratar, sem eru með meirihluta í fulltrúadeildinni, tilkynntu í gær að Mueller myndi bera vitni fyrir leyniþjónustu- og dómsmálanefndunum 17. júlí. Formenn nefndanna höfðu stefnt Mueller til að bera vitni og segir New York Times að hann hafi orðið við þeim.

Mueller hefur aðeins tjáð sig einu sinni um rannsókn sína sem stóð yfir í tæp tvö ár. Á blaðamannafundi sem hann boðaði óvænt til í maí gaf hann sterklega í skyn að hann vildi ekki vera dreginn fyrir þingnefnd til að bera vitni. Mögulegur framburður hans þar myndi ekki fela í sér meira en það sem kom fram í skýrslu hans.

Jerrold Nadler og Adam Schiff, formenn þingnefndanna, sögðust í bréfi til Mueller hafa skilning á því að hann hefði efasemdir um að bera vitni en þeir kröfðust þess engu að síður að hann gerði það.

„Bandarískur almenningur á það skilið að heyra beint frá þér um rannsókn þína og niðurstöður. Við munum vinna með þér að því að taka á gildum áhyggjum til að verja heilindi vinnu þinnar en við búumst við því að þú komir fyrir nefndir okkar samkvæmt áætlun,“ skrifuðu formennirnir til Mueller.

Gat ekki hreinsað forsetann af sök í skýrslunni

Skýrsla Mueller var gerð opinber að mestu á skírdag. Samkvæmt henni gat Mueller ekki sýnt fram á að forsetaframboð Trump hefði átt í glæpsamlegu samráði við útsendara rússneskra stjórnvalda jafnvel þó að í skýrslunni sé rakinn fjölda samskipta á milli þeirra.

Þá tók Mueller ekki afstöðu til þess hvort að Trump hefði gerst sekur um að hindra framgang réttvísinnar og vísaði til lögfræðiálits dómsmálaráðuneytisins um að ekki sé hægt að ákæra sitjandi forseta. Greindi Mueller aftur á móti frá ellefu atriðum sem túlka mætti sem tilraunir forsetans til að leggja stein í götu rannsóknarinnar.

Tók Mueller sérstaklega fram í skýrslu sinni og síðar á blaðamannafundinum í síðasta mánuði að teldu saksóknarar hans að forsetinn væri saklaus af ásökunum um að hindra framgang réttvísinnar hefðu þeir lýst þeirri skoðun sinni. Þeir gætu ekki hreinsað forsetann af sök.

Hvíta húsið hefur undanfarið sóst eftir að stöðva tilraunir demókrata í fulltrúadeildinni til að rannsaka Trump og ýmsar stjórnarathafnir. Þannig hefur það skipað núverandi og fyrrverandi embættismönnum að hunsa stefnur þingnefnda um gögn og vitnisburð. Ekki er ljóst hvort að Hvíta húsið muni reyna að koma í veg fyrir að Mueller beri vitni.

Nær öruggt er að fjaðrafok verði í kringum vitnisburð Mueller í Bandaríkjaþingi. Líklegt er að framburður hans verði sendur út í beinni sjónvarpsútsendingu þar sem demókratar munu reyna að fá upp úr Mueller upplýsingar um mögulega glæpi forsetans en repúblikanar gera sitt besta til að verja hann í bak og fyrir.


Tengdar fréttir

Mueller: Kom ekki til greina að ákæra Trump vegna stefnu ráðuneytisins

Robert Mueller, sérstakur saksóknari bandaríska dómsmálaráðuneytisins, tilkynnti á blaðamannafundi í dag að hann hefði lokið störfum. Á blaðamannafundinum tjáði hann sig í fyrsta skipti eftir að skýrsla hans um meint samráð forsetaframboðs Donalds Trump við Rússa og tilraunir Trump til að hindra framgang réttvísinnar var birt.

Skýrslan lýsir tilraunum Trump til að skaða rannsóknina

Þrátt fyrir að ekki sé mælt með ákæru í skýrslu Roberts Mueller lýsir hann tilraunum Trump forseta til að leggja stein í götu rannsóknarinnar, þar á meðal með því að vilja reka Mueller sjálfan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×