Yfirgnæfandi meirihluti með hertri vopnalöggjöf Atli Ísleifsson skrifar 2. apríl 2019 10:12 Stuart Nash lögreglumálaráðherra tók til máls í þinginu fyrr í dag. Getty
Yfirgnæfandi meirihluti nýsjálenska þingsins greiddi í dag atkvæði með frumvarpi um að vopnalöggjöf landsins verði hert. Alls greiddu 119 þingmenn atkvæði með frumvarpinu, en einn greiddi atkvæði gegn. Atkvæðagreiðslan fór fram rúmum hálfum mánuði eftir hryðjuverkaárásina í Christchurch þar sem fimmtíu manns létu lífið og tugir særðust. „Við viljum aldrei aftur sjá viðlíka árás í landinu okkar. Við verðum að bregðast hratt við,“ sagði Stuart Nash lögreglumálaráðherra í þinginu. Frumvarpið felur í sér bann við hálfsjálfvirkum skotvopnum, líkt og þau sem hryðjuverkamaðurinn notaðist við í Christchurch. Sagði Nash allt of marga hafa aðgang að hættulegum skotvopnum án réttlætanlegrar ástæðu, sem skapi hættu fyrir almenning. Eini þingmaðurinn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu var David Seymore frá hægriflokknum ACT, en hann sagði lagabreytinguna einkennast af fljótfærni. Seymore er eini þingmaður ACT. Þingið þarf að greiða atkvæði um frumvarpið í tvígang til viðbótar áður en það verður að lögum.
Hryðjuverk í Christchurch Nýja-Sjáland Mest lesið Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Erlent Aflýsa yfir þúsund flugferðum Erlent Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Erlent Fölsuð megrunarlyf líklega á leið til landsins Innlent Engin ástæða til að breyta neinu Innlent Réðst á lögreglumann í miðbænum Fréttir Óljóst hvað olli því að rútan hafnaði utan vegar Innlent Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Erlent Getur ríkislögreglustjóri setið áfram? Fréttir Píratar kjósa formann í lok mánaðar Innlent Fleiri fréttir Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Aflýsa yfir þúsund flugferðum Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Bretar vilja fara „dönsku leiðina“ í innflytjendamálum Einn uppgötvenda byggingar DNA látinn Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Trump veitir Ungverjum undanþágu Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre „Samlokumaðurinn“ sýknaður Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Rannsaka hakakrossa sem voru málaðir með blóði úr manni Pútín sagður beina kúgunartækjum sínum að eigin stuðningsmönnum Flugumferðarstjórar að bugast og dregið úr ferðum innanlands Belgar kalla saman þjóðaröryggisráð vegna drónaflugs við flugvelli Tala látinna hækkar á Filippseyjum Óttast að María sé að stela athyglinni frá Jesú á samfélagsmiðlum Tortryggnir í garð tolla Trumps Plata hermenn í hjónaband og hirða svo bæturnar Hver er Zohran Mamdani og hvað vill hann? Sjá meira