Lífið

Kim, Kourtney og Khloé mættu allar í Jimmy Kimmel og körfuboltamenn voru til umræðu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Frægustu systur heims hjá Kimmel.
Frægustu systur heims hjá Kimmel.
Fyrsti þátturinn í 16. seríu af Keeping Up with the Kardashians var frumsýndur þann 31. mars á sjónvarpsstöðinni E!

Tökum á þáttaröðinni lauk áður en fréttir bárust af meintu framhjáhaldi Tristan Thompson, barnsföður Khloé Kardashian, og Jordyn Woods sem er besta vinkona yngstu Kardashian systurinnar. Þrátt fyrir það verður ótryggð Thomspon til umfjöllunar í þáttaröðinni, líklega í tengslum við fyrri framhjáhalds-skandala hans.

Ljóst er að Khloé og hennar líf verður fyrirferðarmikið í þáttaröðinni en í stiklunni talar hún um virðingarleysi Thompson, dóttur þeirra True og hvernig fólk leyfir sér að tala um fjölskylduna.

Kim, Kourtney og Khloé Kardashian mættu allar saman í spjallþátt Jimmy Kimmel til að ræða þáttaröðina en að þessu sinni tekinn upp í Las Vegas. Kim Kardashian og Kanye West eiga von á sínu fjórða barni og kom í ljós í viðtalinu að hún væri að hugsa um að skíra drenginn Rob West í höfuðið á bróður sínum, Rob Kardashian.

Jimmy Kimmel varpaði fram spurningu á Khloé Kardashian sem hljómaði svona: Er kannski komin tími til að hætta vera með körfuboltamönnum? Khloé Kardashian hefur verið í ástarsambandi með Lamar Odom, James Harden, Tristan Thompson og Kris og enduðu þau sambönd öll illa.

„Ég ræð ekki við hverjum mér líkar vel við, svo ég get ekki sagt neitt annað en það,“ sagði Khloé.

„Ég þarf reyndar að fara hlusta á ömmu mína MJ og fara hitta endurskoðendur.“

Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×