Lífið

Tárvotur Lionel Richie: Brings varð nýlega lögblind en syngur eins og engill

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lionel Richie átti ekki til eitt aukatekið orð.
Lionel Richie átti ekki til eitt aukatekið orð.
Hin sautján ára Shayy Brings varð lögblind fyrir um ári síðan þegar æxli fannst í heila. Hún varð fyrir miklu einelti í skólanum í kjölfarið og hefur síðastliðin ár reynst henni mjög erfitt.

Brings mætti í áheyrnaprufu í skemmtiþáttinn American Idol á dögunum og flutti þar lagið Rise Up með Andra Day.

Áheyrnaprufan var vægast sagt tilfinningaþrungin og brotnaði dómarinn Lionel Richie hreinlega niður.

Richie var í vandræðum með tilfinningar sínar alla prufuna og þegar Brings hafi lokið við flutninginn stóð hann upp og faðmaði stúlkuna.

Hér að neðan má sjá prufuna sem milljónir hafa horft á.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×