Lífið

Brit­n­ey lagðist inn á geð­heil­brigðis­stofnun vegna veikinda föður síns

Birgir Olgeirsson skrifar
Faðir hennar hefur verið alvarlega veikur undanfarna mánuði.
Faðir hennar hefur verið alvarlega veikur undanfarna mánuði. Vísir/Getty

Bandaríska söngkonan Britney Spears lagðist inn á geðheilbrigðisstofnun vegna andlegs álags sem hefur fylgt alvarlegum veikindum föður hennar.

Greint er frá þessu á vef Variety en þar kemur fram að hin 37 ára gamla Spears hafi lagst sjálfviljug inn fyrir viku og muni verða á geðheilbrigðisstofnuninni í 30 daga.

Faðir hennar, Jamie Spears, hefur glímt við mikil veikindi undanfarið en gekkst nýverið undir aðra skurðaðgerð þar sem læknar reyndu að lagfæra rifinn ristil.

Í nóvember síðastliðnum ákvað Spears að gera hlé á tónleikaröð hennar í Las Vegas vegna veikinda föður hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×