Lífið

Bónorð í American Idol og Katy Perry hágrét

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fallegt augnablik í Amercian Idol.
Fallegt augnablik í Amercian Idol.
Johanna Jones tók lagið Wicked Game eftir Chris Isaak í American Idol á dögunum og var hún heldur leið yfir því að kærasti hennar gat ekki verið viðstaddur þar sem hann var í prófum.

Jones stóð sig mjög vel og negldi flutninginn en þegar lagið var búið birtist allt í einu maðurinn í hennar lífi, fór á skeljarnar og bað hennar.

Jones brá heldur betur og brotnaði algjörlega niður og það sama má segja um Katy Perry, dómara, sem grét einnig og öskraði: „Af hverju getur enginn elskað mig svona.“

Hér að neðan má sjá atvikið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×