Lífið

Kimmel birtist óvænt í brúðkaupi í Las Vegas og Celine Dion tók lagið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg athöfn.
Falleg athöfn.
Í síðustu viku var spjallþáttur Jimmy Kimmel sendur út frá Las Vegas og endaði vikan heldur betur með stæl.

Kimmel hafði komið fyrir falinni myndavél í brúðkaupi sem fór fram í kapellu í Las Vegas og birtist sjálfur Kimmel allt í einu á skjá inni í salnum.

Því næst gekk leikarinn David Spade inn í salinn og truflaði athöfnina örlítið áður en Jimmy Kimmel gaf hjónin saman.

Nýgiftu hjónin fengu síðan tónlistaratriði af dýrari gerðinni yfir fyrsta dansinum þar sem sjálf Celine Dion gekk inn í salinn og tók lagið eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×