Körfubolti

Nóg af spennuleikjum í NBA-deildinni í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Joel Embiid var í tröllaham í sigri á Boston í nótt.
Joel Embiid var í tröllaham í sigri á Boston í nótt. AP/Matt Slocum
Það var nóg af spennu í leikjum næturinnar í NBA-deildinni í körfubolta en Toronto Raptors, Chicago Bulls og Memphis Grizzlies unnu öll í framlengingu. Sigurganga Philadelphia 76ers hélt áfram en Miami Heat endaði níu leikja sigurgöngu San Antonio Spurs. James Harden skoraði 57 stig en tapaði samt.





Joel Embiid var með algjöran tröllaleik, 37 stig og 22 fráköst, þegar Philadelphia 76ers vann 118-115 sigur á Boston Celtics en þetta var sjötti sigurleikur Sixers liðsins í röð. Jimmy Butler skoraði 15 af 22 stigum sínum í fjórða leikhlutanum.

Tobias Harris skoraði 21 stig fyrir Philadelphia sem hafði fyrir þennan leik tapað öllum leikjum sínum á tímabilinu á móti Boston. Kyrie Irving skoraði 36 stig fyrir Boston.





James Harden skoraði 57 stig fyrir Houston Rockets en liðið varð engu að síður að sætta sig við eins stiga tap, 126-125, í framlengdum leik á móti Memphis Grizzlies Mike Conley skoraði 35 stig fyrir Memphis og Jonas Valanciunas bætti við 33 stigum og 15 fráköstum auk þess að tryggja sínu liði sigur á vítalínunni þegar 0,1 sekúndur voru eftir af leiknum.

Harden skoraði 15 af 17 stigum Houston á góðum kafla í fjórða leikhluta þegar liðið náði að jafna aftur leikinn og setti síðan niður þrjú víti fjórum sekúndum fyrir leikslok til að koma leiknum í framlengingu.

Harden hitti úr 18 af 39 skotum, 12 af 12 vítum en hann skoraði 9 þrista úr 17 tilraunum. Hann var einnig með 8 stoðsendingar og 7 fráköst.





Goran Dragic skoraði 22 stig fyrir Miami Heat þegar liðið vann 110-105 sigur á San Antonio Spurs og endaði með því níu leikja sigurgöngu Spurs. Dion Waiters skoraði 18 stig fyrir Miami og Josh Richardson var með 15 stig í þriðja sigri liðsins í röð.

San Antonio tapaði síðast 25. febrúar í Brooklyn og hafði einnig unnið ellefu heimaleiki í röð fyrir tapið í nótt. LaMarcus Aldridge var með 17 stig en DeMar DeRozan skoraði 16 stig, tók 15 fráköst og gaf 6 stoðsendingar.  Patty Mills og Marco Belinelli skoruðu báðir 17 stig.





Finninn Lauri Markkanen var með 32 stig og 13 fráköst þegar Chicago Bulls vann 126-120 sigur á Washington Wizards í framlengdum leik. Kris Dunn var líka frábær hjá Bulls með 26 stig og 13 stoðsendingar. Bulls lék án lykilmannanna Zach LaVine og Otto Porter Jr. en vann samt.

Jabari Parker var stigahæstur hjá Washington með 28 stig á móti sínu gamla liði en Bradley Beal skoraði 27 stig og kom leiknum í framlengingu.





Pascal Siakam var magnaður með 33 stig og 13 fráköst og Fred VanVleet bætti við 23 stigum og 6 stoðsendingum þegar Toronto Raptors vann 123-114 sigur á Oklahoma City Thunder eftir framlengdan leik. Kawhi Leonard var með 22 stig og 10 fráköst.

Russell Westbrook var með 42 stig, 11 fráköst og 6 stoðsendingar en það kom ekki í veg fyrir fjórða tap liðsins í röð og það tíunda í síðustu fjórtán leikjum.









Úrslitin í leikjum NBA-deildarinnar í nótt:

Portland Trail Blazers - Dallas Mavericks    126-118   

Oklahoma City Thunder - Toronto Raptors    114-123 (110-110)   

San Antonio Spurs - Miami Heat    105-110   

Chicago Bulls - Washington Wizards    126-120 (113-113)   

Memphis Grizzlies - Houston Rockets    126-125 (115-115)   

New York Knicks - Utah Jazz    116-137   

Cleveland Cavaliers - Milwaukee Bucks    107-102   

Orlando Magic - New Orleans Pelicans    119-96   

Philadelphia 76ers - Boston Celtics    118 -115  

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×