Ómar Ingi kominn yfir 100 stoðsendingar og verður ekki felldur af toppnum Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. mars 2019 15:00 Ómar Ingi Magnússon fer á kostum með Álaborg. vísir/getty
Ómar Ingi Magnússon, landsliðsmaður í handbolta, er kominn yfir 100 stoðsendingar fyrir lið sitt Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni en hann trónir á toppnum yfir stoðsendingahæstumenn deildarinnar með 102 slíkar í 24 leikjum eða 4,25 að meðaltali í leik. Það er morgunljóst að Ómar Ingi mun enda deildarkeppnina í Danmörku sem stoðsendingakóngur tímabilsins því næsti maður, Morten Nyberg hjá TMS Ringsted, er 19 stoðsendingum á eftir Ómari með 83 stykki þegar að liðin eiga aðeins einn til tvo leiki eftir. Hægri skyttan frá Selfossi hefur spilað frábærlega fyrir Álaborgarliðið sem er í öðru sæti deildarinnar með 37 stig, stigi á eftir GOG en á leik til góða og er því með deildarmeistaratitilinn í sínum höndum. Ómar Ingi er einnig 13. markahæsti leikmaður deildarinnar með 114 mörk og 64 prósent skotnýtingu en hann er einnig búinn að skora úr 20 af 25 vítaköstum sínum á tímabilinu. Janus Daði Smárason leikur einnig með Álaborgarliðinu og þá er Arnór Atlason aðstoðarþjálfari þess en saman urðu þeir bikarmeistarar á dögunum og geta á næstu dögum bætt deildarmeistaratitlinum í safnið.
Handbolti Mest lesið Leik Frakklands á HM í kvöld gæti verið frestað Fótbolti Heimsmeistarinn ætlar að slá brautarmetið Sport Dagurinn hans Ounahi og Marokkó fyrst í átta liða úrslit Fótbolti Baulað á enska landsliðið Fótbolti ÍBV-Valur 1-0 | Alex Freyr í aðalhlutverki í enn einum Eyjasigri Íslenski boltinn „Ég kom fram og mamma var grátandi“ Sport Grænhöfðaeyjar grátlega nálægt því að senda heimsmeistarana heim Fótbolti Brautarmet féllu hvert á fætur öðru í Dyrafjallahlaupinu Sport Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Körfubolti Vill endurgera AI myndband sem sprengdi netið Fótbolti Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira