Innlent

Stakk af frá tjónsvettvangi eftir ofsaakstur

Andri Eysteinsson skrifar
Hér má sjá þegar Benz-bíllinn hefur farið þvert fyrir Tómas og bíll hans hefur í leiðinni snúist.
Hér má sjá þegar Benz-bíllinn hefur farið þvert fyrir Tómas og bíll hans hefur í leiðinni snúist. Skjáskot/Tómas Þröstur Rögnvaldsson
Myndband Tómasar Þrastar Rögnvaldssonar hefur vakið mikla athygli á Facebook í dag. Myndbandið sýnir árekstur silfurlitaðs Mercedes Benz bíls við ökutæki Tómasar Þrastar síðastliðinn sunnudag. DV greindi fyrst frá málinu.

Í færslu með myndbandinu segir Tómas að líklega hafi ökumaður Benz-bílsins misst stjórn á honum vegna ofsaaksturs upp Ártúnsbrekkuna en áreksturinn varð við hlið bensínstöðvar N1.

Í myndbandinu sést svo þegar ökumaður Benz-bílsins stingur af og má greinilega sjá hann aka í brott. Tómas Þröstur segir í samtali við Vísi að áreksturinn hafi átt sér stað rétt fyrir hádegi, síðasta sunnudag.

Sjá má í myndskeiðinu þegar Benz-bíllinn skýst hægra megin fram fyrir bíl Tómasar sem þó var á hægri akrein. Því er ljóst að ökumaðurinn var utan akreinar áður en hann fór í veg fyrir Tómas Þröst.

Mildi þykir að ekki hafi orðið slys á fólki en að sögn Tómasar munaði litlu að bíll hans hefði oltið. Tómas var ekki einn í bílnum en eiginkona hans var með í för.

Tómas segir að vitni að árekstrinum hefði stöðvað bílinn og mun ökumaður Benz-bílsins hafa verið nærri því að keyra á hana á ofsahraða, um 120 km/h, vitni þetta var á smábíl og með barn í bílnum að sögn Tómasar.

Bíll Tómasar er að eigin sögn óökufær, bíllinn er ekki illa klesstur en meðal annars séu öll ljós hægra megin á framhlið mölbrotin. Tómas sagði í samtali við Vísi að hann hafi ekið rakleitt á lögreglustöðina að Vínlandsleið og þar gefið skýrslu ásamt afriti af myndbandinu.

Tómas segir í samtali við fréttastofu að kunni einhver að þekkja ökumann Benz-bílsins skuli hann hafa samband við lögreglu, enda sé um lögreglumál að ræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×