Makamál

Losti eða ást?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Hvenær vitum við hvort að tilfinningarnar sem að við erum að finna séu ást eða losti?
Hvenær vitum við hvort að tilfinningarnar sem að við erum að finna séu ást eða losti? Getty
Þegar við byrjum að hitta manneskju og verðum hrifin er ekki alltaf auðvelt að greina á milli ástar og losta.

Bæði losti og ást eru sterkar tilfinningar og þegar leikurinn er hafinn getum við stundum verið ringluð með það hvar við stöndum og hvað það er sem við erum raunverulega að finna. 

Rannsóknir hafa gefið til kynna að heilinn í manneskjum á þessu stigi er svoldið eins og heili á lyfjum. Við vitum því ekki alveg hvaða tilfinningar það eru sem við erum að finna. 

En hver eru merki þess að sambandið sé losti en ekki ást?

LOSTI:
 

1. Þú einbeitir þér algjörlega á líkama manneskjunnar og útlit. 

2. Þú hefur áhuga á því að stunda kynlíf með manneskjunni en ekki eiga í samræðum.

3. Þú vilt frekar hafa sambandið í fantasíuheimi frekar en að ræða raunverulegar tilfinningar. 

4. Þú vilt helst fara eftir kynlífið frekar en að kúra eða að vakna saman næsta morgun. 

5. Þið eruð elskendur, ekki vinir. 

ÁST:

1. Þig langar að eyða gæðastundum með manneskjunni, fyrir utan kynlífið. 

2. Þú gleymir þér í samræðum og tíminn einhvern veginn stöðvast. 

3. Þú vilt hlusta af einlægni á hina manneskjuna og gera hana hamingjusama.

4. Þegar manneskjan hefur þau áhrif á þig að þú vilt verða betri. 

5. Þú vilt hitta vini og fjölskyldu manneskjunnar. 

Upplýsingarnar eru fengnar af heimasíðu geðlæknisins Judith Orloff. En hægt er að lesa meira um muninn á losta og ást hér. 


Tengdar fréttir

Sönn Íslensk makamál: Ég sem fullkomin tík

Fyrir ekki svo mörgum árum voru fyrstu kynni manns af manneskju yfirleitt alltaf augliti til auglitis. Við sáum fólk í fyrsta skipti nákvæmlega eins og það var þann daginn. Í dag stjórnum við því yfirleitt hvernig fólk sér okkur í fyrsta skipti. Eða réttara sagt hvernig það upplifir okkur í fyrsta skipti. Í gegnum skjáinn á símanum sínum.

Rúmfræði: Hvað er kynlífsröskun?

Áslaug Kristjánsdóttir hjúkrunar- og kynfræðingur starfar sem kynlífsráðgjafi á Domus Mentis geðheilsustöð. Makamál höfðu samband við Áslaugu og fengu að forvitnast um hvað svokölluð kynlífsröskun er og hvernig er hægt að meðhöndla hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×