Makamál

Spurning vikunnar: Lentir þú í ástarævintýri um Versló?

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Spurning vikunnar að þessu sinni er ætluð einhleypum einstaklingum. 
Makamál spyrja um ástarævintýr helgarinnar.
Spurning vikunnar að þessu sinni er ætluð einhleypum einstaklingum. Makamál spyrja um ástarævintýr helgarinnar. Getty
Nú er ein af stærstu ferðahelgum ársins liðin og all flestir sem sóttu útihátíðir á landsbyggðinni komnir heim þreyttir og vonandi hamingjusamir með helgina. 

Það er einhver rómantík við það að skemmta sér á íslensku sumarkvöldi með vinum og kunningjum og oft er mikil spenna og eftirvænting að hitta jafnvel hinn eina sanna eða þá einu réttu undir berum himni. 

Sumir lenda í stuttum helgarævintýrum meðan aðrir finna jafnvel ástina sína í pollagalla, horfandi á flugeldasýningu og syngjandi íslensk gítarlög af miklum eldmóð.

Makamál beina spurningu vikunnar að þessu sinni til einhleypra einstaklinga og spyrja: 

Lentir þú  í ástarævintýri um versló? 



 


Tengdar fréttir

Bone-orðin 10: Eva Lind elskar fallegt skegg og sjálfsöryggi

Eva Lind Rútsdóttir er 33 ára fatahönnuður og hársnyrtir. Eva er þessa dagana að vinna sjálfstætt við búningagerð í kvikmyndum, sjónvarpsseríum og auglýsingum. Makamál fengu að heyra tíu Bone-orðin hennar Evu.

Óháð kyni, ekki vera fáviti!

Stærsta ferðahelgi ársins er gengin í garð og mikil eftivænting í brjóstum margra fyrir mögulegum ástarfundum eða ævintýrum næstu daga. Þegar vín er haft við hönd geta mörk fólks verið stundum óljós og því miður lenda sumir í ógöngum. Hvernig getum við komið í veg fyrir óviðeigandi samskipti, áreiti eða ofbeldi þegar kemur að samskiptum eða skyndikynnum?

Nína vildi raun­veru­legar ástar­sögur í út­varpið

Nína Hjálmarsdóttir er 27 ára, sviðslista og daskrárgerðarkona sem hefur hlotið mikla athygli fyrir hlaðvarpsþáttinn sinn Ástin sem unninn var í samstarfi við RÚV núll. Makamál hittu Nínu í kaffi og spurðu hana um ástina, ferlið við þáttargerðina og áhrifin sem það hafði á hana persónulega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×