Harðorðar bókanir frá sveitarstjórnum fyrir norðan: „Ljóst er að allir helstu opinberu innviðir samfélagsins brugðust“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. desember 2019 18:24 Sauðárkrókur var án rafmagns í meira en sólarhring og enn er víða rafmagnslaust á Norðurlandi. Vísir/JóiK
Sveitarstjórn Húnaþings vestra sem sveitarstjórn Skagafjarðar hafa sent frá sér nokkuð harðorðar bókanir vegna þess alvarlega ástands sem skapast hefur í sveitarfélögunum tveimur vegna óveðursins sem gekk yfir landið í vikunni. Í báðum sveitarfélögum hafa íbúar glímt við rafmagnsleysi, sem meðal annars hefur orðið til þess að kólnað hefur mjög á sumum heimilum. Í bókun sveitarstjórnar Húnaþings vestra segir að sveitarstjórnin líti atburði síðustu sólarhringa grafalvarlegum augum: „Ljóst er að allir helstu opinberu innviðir samfélagsins brugðust í því veðuráhlaupi sem nú gengur yfir. Starfsfólk og sjálfboðaliðar sem staðið hafa vaktina hafa unnið þrekvirki síðustu daga við að koma á rafmagni, fjarskiptum og greiða fyrir samgöngum eins og kostur er. Fórnfýsi þessa fólks er okkur sem hér búum algerlega ómetanleg. Húnaþing vestra hefur verið rafmagnslaust í rúmlega 40 klukkustundir, hluti sveitarfélagsins er ekki enn kominn með rafmagn og ekki vitað hversu lengi það ástand varir. Ljóst er að nú þegar hefur orðið talsvert tjón hjá íbúum og eykst það eftir því sem tíminn líður. Það er algerlega óviðunandi að grunnstofnanir samfélagsins, RARIK, Landsnet og fjarskiptafyrirtækin hafi ekki verið betur undirbúin og mönnuð á svæðinu en raun ber vitni. Aftur á móti voru Björgunarsveitirnar og Rauði krossinn, sem rekin eru í sjálfboðavinnu, vel undirbúin og komin með tæki og fólk á staðinn áður en veðrið skall á,“ segir í bókuninni. Grafalvarlegt að ekki sé starfsstöð lögreglu á svæðinu Þá segir jafnframt að það sé óásættanlegt að tengivirki í Hrútatungu hafi verið ómannað þrátt fyrir yfirlýsingar Landsnets um annað. „Sveitarstjórn Húnaþings vestra gerir þá grundvallarkröfu að á svæðinu sé mannafli sem getur brugðist við með skömmum fyrirvara. Starfsstöð RARIK á Hvammstanga er einmenningsstarfsstöð og hefur því ekki burði til að takast á við aðstæður sem þessar. Nú stendur fyrir dyrum að RARIK leggi niður starfsstöðina á Hvammstanga sem sveitarstjórn telur með öllu óviðunandi. Aðstæður síðustu daga sýna fram á mikilvægi þess að á Hvammstanga sé starfandi vinnuflokkur með a.m.k. tveimur til fjórum stöðugildum. Engin varaaflsstöð er í Húnaþingi vestra og hefði verið hægt að lágmarka vandann ef slík stöð væri staðsett á Hvammstanga. Í kjölfar víðtæks rafmagnsleysis duttu öll samskipti út, farsímasamband og Tetra kerfi lögreglu. Lífsspursmál er að íbúar sveitarfélagsins geti náð í viðbragðsaðila ef alvarleg slys eða veikindi ber að höndum. Hlutverk fjölmiðla er mjög mikilvægt í aðstæðum líkt og sköpuðust síðustu daga og þá sérstaklega er litið til öryggishlutverks Ríkisútvarpsins sem brást algerlega. Dreifikerfi RÚV lá niðri víða í sveitarfélaginu og náðust sendingar illa eða alls ekki. Almennri upplýsingagjöf til íbúa um stöðu og horfur var ekki sinnt. Litlar sem engar fréttir bárust frá Húnaþingi vestra þrátt fyrir að veðuraðstæður væru hvað verstar á þessu svæði og útvarpið nær eina leið íbúa til að fá upplýsingar. Ótækt er að vísað sé til vefsíðna til frekari upplýsinga um stöðu mála þegar hvorki er rafmagn né fjarskiptasamband. Grafalvarlegt er að ekki sé starfsstöð lögreglu á svæðinu sérstaklega við aðstæður sem þessar. Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur ítrekað vakið máls á þessu án nokkurra undirtekta. Sveitarstjórn Húnaþings vestra lýsir áhyggjum sínum af því að ekki er varaaflstöð við Heilbrigðisstofnun Vesturlands Hvammstanga. Sveitarstjórn hvetur til að úr því verði bætt hið snarasta. Sveitarstjórn Húnaþings vestra mun á næstu dögum óska eftir fundum með RARIK, Landsneti, Heilbrigðisstofnun Vesturlands, lögreglu og stjórnvöldum,“ segir í bókun sveitarstjórnarinnar. „Það ástand sem enn varir í mörgum byggðarlögum landsins er óboðlegt með öllu“ Bókun sveitarstjórnar Skagafjarðar snýr að óviðunandi raforkuöryggi í Skagafirði. Er lýst yfir miklum áhyggjum af þeirri stöðu sem kom upp í sveitarfélaginu og víðar á landinu vegna óveðursins: „Það er óviðunandi á árinu 2019 að í kjölfar óveðurs skuli tugþúsundir manna verða innlyksa án rafmagns og hita sólarhringum saman, auk þess að njóta bágborinna fjarskipta og upplýsinga um hvaða endurbótum og lagfæringum liði. Ekki er boðlegt að stefna hundruðum manna út í mannskaðaveður, með tilheyrandi hættu, til að ráðast í lagfæringar á innviðum sem hefði þegar átt að vera búið að byggja upp með því öryggi sem tilheyrir 21. öldinni. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar á stjórnvöld að fara rækilega ofan í atburði liðinna daga og byggja upp nauðsynlegar áætlanir við hamförum sem þessum. Jafnframt er mikilvægt að ráðast þurfi í við- og endurbætur á Sauðárkrókshöfn svo höfnin geti staðið áhlaup sem þessi. Þá er nauðsynlegt að ráðast án tafar í stórfellt átak uppbyggingar raforku- og fjarskiptainnviða á Norðurlandi og í fleiri landshlutum sem nái til allra sveita og bæja landsins. Það ástand sem enn varir í mörgum byggðarlögum landsins er óboðlegt með öllu,“ segir í bókun sveitarstjórnar Skagafjarðar.
Húnaþing vestra Óveður 10. og 11. desember 2019 Skagafjörður Veður Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Innlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Trump tókst að fella Massie Erlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Erlent Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um áframhaldandi samstarf Stýrivextir enn á uppleið og þreifingar um myndun meirihluta Hækka leigu stúdenta Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Sjá meira