Matur

Aðventumolar Árna í Árdal: Jólakokteillinn Tommi og Jenni

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Tommi og Jenni - Jólakokteill
Tommi og Jenni - Jólakokteill Vísir/Árni

Á hverjum degi fram að jólum birtum við uppskrift frá Aðventumolum Árna í Árdal sem sýndir eru á Stöð 2 í desember. Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 

Með einskærri lífsgleði og eldmóð hefur Árni sérstakan hæfileika til að hrífa fólk með sér. Hér nær hann svo sannarlega að veita áhorfendum innblástur og töfrar fram bragðgóða og spennandi rétti alla aðventuna. Jólakokteillinn Tommi og Jenni er uppskrift dagsins. Aðventumolann má sjá hér í spilaranum að neðan en uppskrift og leiðbeiningar er að finna neðar í fréttinni. Aðventumolar Árna í Árdal eru á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19.10 alla daga fram að jólum nema á föstudögum eru þeir sýndir beint á eftir Allir geta dansað.  

Tommi og Jenni (Tom and Jerry) var vinsæll jólakokteill sem blaðamaðurinn Pierce Egan átti heiðurinn að. Hann nefndi kokteilinn eftir aðalpersónum í bók sinni Life in London sem kom út árið 1820 og á drykkurinn því ekki skylt með teiknimyndapersónunum frægu. Kokteillinn var geysivinsæll í Bandaríkjunum á nítjándu öld og fyrri hluta þeirrar tuttugustu en féll í gleymsku um miðbik 20. aldarinnar, nema þá í miðríkjunum þar sem hann er enn í miklum metum.

Innihald

Eggjafroða

12 egg (um 600 grömm)

300 grömm flórsykur

1 teskeið vanilludropar

½ teskeið malaður negull

½ teskeið malað allrahanda

½ teskeið malað múskat

1 teskeið vínsteinn (e. cream of tartar)

Kokteill

100 millilítrar eggjafroða

1 matskeið kryddað dökkt romm

1 matskeið koníak

100 millilítrar flóuð mjólk

Múskathneta

Leiðbeiningar

  1. Eggjafroða - Aðskiljið eggin og setjið rauðurnar og hvíturnar í sitthvora stóru skálina. Blandið flórsykri við rauðurnar og þeytið með handþeytara þar til blandan er orðin létt og ljós. Bætið þá vanilludropunum og öllu kryddinu út í og blandið vel saman. Þrífið píska handþeytarans vel og gætið þess að engin eggjarauða sé eftir á þeim. Þeytið eggjahvíturnar með vínsteininum þar til þær eru orðnar stífar og gljáandi. Hrærið þriðjungi hvítanna við eggjakremið til að létta kremið aðeins. Bætið þá við restinni af eggjahvítunum og blandið varlega saman. 

  2. Kokteill - Hitið glösin upp með sjóðandi vatni. Hrærið aðeins upp í eggjafroðunni og setjið í hvert glas þannig að þau séu hálffullt. Bætið romminu og koníakinu út í. Fyllið glösin með flóaðri mjólk. Notið töfrasprota til að þeyta mjólkina og búa þannig til mjólkurfroðu. Setjið væna skeið af froðunni ofan á hvern drykk og rífið að lokum dálítið af múskathnetunni yfir. Berið strax fram.


Tengdar fréttir

Aðventumolar Árna í Árdal: Jólaís

Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×