Matur

Aðventumolar Árna í Árdal: Jólaskjóður

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vísir/Árni

Aðventumolar Árna í Árdal er nýr liður hér á Vísi. Á hverjum degi fram að jólum birtum við uppskrift frá ómissandi aðventuþáttum hans sem sýndir eru á Stöð 2 í desember. Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 

Með einskærri lífsgleði og eldmóð hefur Árni sérstakan hæfileika til að hrífa fólk með sér. Hér nær hann svo sannarlega að veita áhorfendum innblástur og töfrar fram bragðgóða og spennandi rétti alla aðventuna. Uppskrift dagsins eru jólaskjóður. Aðventumolann má sjá hér í spilaranum að neðan en uppskrift og leiðbeiningar er að finna neðar í fréttinni. Aðventumolar Árna í Árdal eru á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19.10 alla daga fram að jólum nema á föstudögum eru þeir sýndir beint á eftir Allir geta dansað.  

Klippa: Jólaskjóður - Aðventumolar Árna í Árdal

Innihald

Jólaskjóður

1 hnetusteik frá Móður Náttúru

Olía, til steikingar

2 skalottlaukar, flysjaðir og grófsaxaðir

½ sætukartafla, flysjuð og skorin í litla teninga

6 sveppir, grófsaxaðir

1 epli, skorið í litla teninga

2 matskeiðar ferskt timian

Salt og nýmalaður svartur pipar

50 millilítrar reyklögur (e. liquid smoke)

Safi úr hálfri sítrónu

Vegan smjördeig

Dijonsósa

Olía, til steikingar

2 skalottlaukar

2 matskeiðar dijonsinnep

Rósapipar, eftir smekk

Fáfnisgras, eftir smekk

1 grænmetisteningur

500 millilítrar jurtarjómi

100 millilítrar hvítvín

Safi úr ½ appelsínu, má sleppa

Salatdressing

10 fersk hindber

Safi úr einni appelsínu

Hvítvínsedik, eftir smekk

Hunang, eftir smekk

Olía, eftir smekk

Sítrónusafi, eftir smekk

Salt

Rauðrófusalat með hindberjum, rauðkáli og perum

1 rauðrófa, rifin í fínar ræmur

¼ rauðkálshaus, skorinn í þunnar ræmur

1 pera, flysjuð og skorin í bita

2 ferskar fíkjur, skornar í báta

10 pekanhnetur, léttristaðar á pönnu

Kartöflumús

500 grömm kartöflur, flysjaðar og skornar í 3 cm bita.

2 matskeiðar olía

2 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir

100 millilítrar jurtamjólk, eða eftir smekk

Lúka af steinselju, fínsöxuð

Salt og pipar, eftir smekk

Leiðbeiningar

Jólaskjóður

  1. Forhitið ofn í 160°C.

  2. Skiptið hnetusteikinni í 6 parta og mótið þéttar kúlur.

  3. Steikið salottlaukinn og sætukartöfluna í smástund á pönnu við miðlungs hita. Bætið sveppum við og látið þá brúnast aðeins. Epli og timjan bætast þá við og blandan smökkuð til með salti og pipar. Hellið reykleginum á pönnuna og látið hann sjóða aðeins niður. Kreistið að lokum sítrónusafa yfir og látið kólna í stutta stund.

  4. Skerið út sex 20x20 sentímetra ferninga af vegan smjördeigi. Leggið hnetusteikarkúlu mitt á hvern smjördeigsferning og mótið úr henni litla skál. Skiptið grænmetisfyllingunni í 6 hluta og setjið ofan í hnetusteikarskálarnar.

  5. Takið í hornin saman á smjördeiginu og lokið skjóðunni með því að þrýsta deiginu saman rétt ofan við fyllinguna. Hornin líta þá út eins og lauf og herlegheitin eins og peningaskjóða.

  6. Skjóðurnar geymast vel óbakaðar inni í ísskáp í 2-3 daga.

  7. Bakið í 50 mín við 160°C.



Dijonsósa

Mýkjið laukinn í potti yfir miðlungshita. Hrærið svo dijonsinnepi, rósapipar, fáfnisgrasi, grænmetiskrafti, jurtarjóma og hvítvíni saman við laukinn. Bætið við appelsínusafa, ef vill. Látið sósuna sjóða rólega niður og bragðið hana til með salti og pipar.



Salatdressing

Blandið og maukið hindber, appelsínusafa, hvítvínsedik og hunang í skál. Hellið olíunni í mjórri bunu og þeytið hana út í hindberjablönduna. Smakkið dressinguna síðan til með sítrónusafa og salti.



Rauðrófusalat með hindberjum, rauðkáli og perum

Blandið rauðrófum, rauðkáli, perum og salatdressingu saman í skál og látið standa í ísskáp. Skreytið salatið með með fíkjum og pekanhnetum rétt áður en það er borið fram.



Kartöflumús

Sjóðið kartöflurnar í 25 mín og hellið vatninu af þeim. Mýkið hvítlaukinn í olíu yfir miðlungshita, hellið jurtamjólkinni út í og látið suðuna koma upp. Setjið kartöflurnar í pottinn og stappið vel. Bætið að lokum steinseljunni við og smakkið til með salti og pipar.


Tengdar fréttir

Aðventumolar Árna í Árdal: Jólaís

Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×