Matur

Aðventumolar Árna í Árdal: Jólaís

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum.
Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. Vísir/Árni

Aðventumolar Árna í Árdal er nýr liður hér á Vísi. Á hverjum degi fram að jólum birtum við uppskrift frá ómissandi aðventuþáttum hans sem sýndir eru á Stöð 2 í desember. Árni Ólafur úr Hinu blómlega búi mun koma öllum í rétta hátíðarskapið og reiða fram einn rétt á dag fram að jólum. 

Með einskærri lífsgleði og eldmóð hefur Árni sérstakan hæfileika til að hrífa fólk með sér. Hér nær hann svo sannarlega að veita áhorfendum innblástur og töfrar fram bragðgóða og spennandi rétti alla aðventuna. Uppskrift dagsins er jólaís. Aðventumolann má sjá hér í spilaranum að neðan en uppskrift og leiðbeiningar er að finna neðar í fréttinni. Aðventumolar Árna í Árdal eru á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 19.10 alla daga fram að jólum nema á föstudögum eru þeir sýndir beint á eftir Allir geta dansað.  

Þegar ég var yngri þá þóttu mér ísblóm alveg ótrúlega spennandi, það var eitthvað við þessa blöndu af vanilluís, sultu og súkkulaði sem heillaði mig. Spólum svo 20 ár fram í tímann, til New York, en þá rekst ég á ís frá Häagen-Dazs, hvítan súkkulaðiís með hindberjasósu og súkkulaðitrufflum. Hann var algjört æði, eins og lúxusútgáfa af ísblómum. Mig hefur alltaf langað að gera mína útgáfu af þessum ís - einfaldlega vegna þess að ég sakna hans - og er hér því semifreddo-útgáfa af þessum ís. Ástæðan fyrir því að ég set ekki súkkulaðitrufflur í ísinn sjálfan er vegna þess að áferðin á þeim verður ólystuglega kalkkennd.

Innihald

Ís

250 millilítrar nýmjólk

100 grömm sykur

¼ teskeið salt

1 teskeið kartöflumjöl

250 grömm hvítt súkkulaði, fínsaxað

2 matskeiðar rjómaostur

750 millilítrar rjómi



Hindberjasulta og sósa

500 grömm hindber

400 grömm sykur

4 matskeiðar sítrónusafi

½ teskeið salt

1 teskeið ylliblómasíróp



Skraut

250 grömm fersk hindber

Súkkulaðitrufflur

100 grömm pistasíur, grófsaxaðar

Leiðbeiningar

  1. Ísgrunnur: Blandið saman mjólk, sykur og salt í litlum potti og náið upp suðunni við  miðlungsháan hita. Hrærið kartöflumjölið út í smá mjólk og bætið út í pottinn. Hrærið stöðugt í pottinum og sjóðið blönduna í um 1 mínútu eða þar hún byrjar að þykkna og búðingur hefur myndast. Takið pottinn af hellunni.
  2. Setjið hvíta súkkulaðið og rjómaostinn í litla skál. Hellið heitri mjólkurblöndunni yfir og hrærið þar til blandan verður einsleit. Setjið blönduna í eitthvað stórt grunnt ílát (til dæmis ofnfast mót) og kælið inni í ísskáp.
  3. Hindberjasulta og sósa: Setjið allt sem á að fara í sultuna í pott og náið upp suðunni yfir miðlungsháum hita. Hrærið reglulega í og skrapið botninn til að sultan brenni ekki við. Sjóðið sósuna þar til hún hefur náð 105°C, þá verður hún hæfilega þykk til að blanda við ísinn. Síið sósuna á meðan hún er enn heit en hindberjafræ eru nokkuð hörð undir tönn, sérstaklega þegar þau eru frosin. Setjið sultuna í eitthvað stórt grunnt ílát og kælið inni í ísskáp. Skiptið sultunni í tvennt, annar helmingurinn er setur í ísinn en hinn er þynntur úr með vatni þar hann er orðinn að seigfljótandi sósu.
  4. Ísinn kláraður: Stífþeytið rjómann og blandið þriðjungi hans saman við kaldan hvítsúkkulaðibúðinginn. Blandið svo restinni af rjómanum varlega saman við.
  5. Ísinn settur saman: Krumpið smjörpappírsörk saman í kúlu og fletjið hana síðan aftur út. Notið krumpaðan smjörpappírinn til að klæða stórt brauðform og setjið gott botnfylli af ísnum í formið. Setjið nokkrar vænar slettur af hindberjasósu á stangli ofan á ísinn. Leggið ísinn og sultuna svona til skiptis í formið og endið á lagi af ís.
  6. Leggið smjörpappírinn sem stendur upp úr forminu ofan á ísinn til að hylja hann. Frystið ísinn í að minnsta kosti 8 klukkustundir. 
  7. Ísinn skreyttur: Notið smjörpappírinn til að ná ísnum úr forminu. Hvolfið honum á langan disk og fjarlægið smjörpappírinn. Skvettið smá sósu yfir ísinn (berið restina af sósunni fram með ísnum) og skreytið hann með ferskum hindberjum og súkkulaðitrufflum. Stráið að lokum pistasíunum yfir ísinn. Berið fram strax.

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×