Stílhrein stálsmíði Anítu Hönnu 26. apríl 2019 15:00 Aníta Hanna Sævarsdóttir segist í hönnun sinni reyna að aðlaga sig óskum fólks og heimili.
Stálsmíði Anítu Hönnu Sævarsdóttur í mínímalískum stíl hefur undanfarið vakið athygli í hinum ýmsu Face book-hópum tileinkuðum innanhússhönnun og smekklegum heimilishugmyndum. Aníta Hanna Sævarsdóttir hannar undir nafninu Holt Heima List og flestir munirnir eru í mínímalískum stíl. En það er skemmtileg saga á bak við það hvernig Aníta endaði á að selja og sérsmíða heimilismuni úr stáli. „Ég byrjaði að læra bílamálun. Bílamálun var alltaf númer tvö hjá mér, ég fann bara aldrei þetta númer eitt eða það sem mig langaði mest að gera. Pabbi minn er bílamálari og afi meistari í bílamálun, þannig að þetta lá beint við. Ég er alin upp í þessu og skellti mér í það nám og fannst skemmtilegt,“ segir Aníta. Aníta kláraði námið en var ekki tilbúin að hætta í skóla því hana grunaði að hún myndi ekki geta snúið aftur í nám síðar. „Þannig að ég skellti mér í vélvirkjun og kláraði hana. Ég vann aðeins við það, flutti austur og vann í álverinu,“ segir hún. Eftir það flutti Aníta suður og í fæðingarorlofi sínu ákvað hún að drífa sig í stálsmíðina. „Mig vantaði svo lítið upp á að klára það af því að ég var búin með vélvirkjun. Mig vantaði aðeins nokkrar einingar,“ segir hún. Aníta tekur aðallega við pöntunum á Facebook-síðu sinni, Holt Heima List. Nafnið er dregið af heimili fjölskyldunnar. „Við búum náttúrulega í Ölvisholti og okkur langaði að tengja þetta við það. Svo er þetta líka það sem ég kalla heimalist, list fyrir heimilið. Ég reyni að aðlaga mig óskum fólks, þeirra rými og heimili.“ Aníta segist stundum sækja innblásturinn á einfaldan hátt eins og á Pinterestvefsíðunni en hann getur þó komið frá hinum ýmsu ólíku stöðum. Aníta segir að stílhreinir munir séu vinsælastir í dag. „Til að byrja með var ég ekki í svona einföldum stíl. Ég á skrollvél til að búa til stálrúllur. Svo elska ég að sjóða, mér finnst það skemmtilegast. Mig langar ekki að vera eingöngu í svona einföldum verkefnum, mig langar til að búa til eitthvað fallegt og vera skapandi. Taka eitthvað venjulegt og gera það óvenjulegt.” Þó fer hver að verða síðastur að panta af Anítu þar sem hún hyggst flytja til Noregs eftir tæpa tvo mánuði. „Já, þá fá Norðmenn bara að njóta þess í staðinn,“ segir Aníta kímin. Hægt er að nálgast muni Anítu á Facebook-síðu hennar Holt Heima List.
Mest lesið Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Lífið „Jú, ég sá einhverja fræga“ Lífið Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu Lífið „Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ Tíska og hönnun Hugljúft en stutt gaman Gagnrýni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Lífið Klæddist fimm kílóum af mannahárum Tíska og hönnun Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Lífið Óþekkjanleg á Óskarnum Tíska og hönnun Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Íslenskir strákar í heimildarmynd um skuggaheim karláhrifavalda Svona gekk Sindra Sindrasyni í bílprófinu „Jú, ég sá einhverja fræga“ Villi Netó skellti hráu eggi með skurninni upp í sig Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Sigríður Dögg komin í ömmuklúbbinn Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Fimmta dóttirin skírð Ozzy Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Sjá meira