Aldrei fleiri hraðakstursbrot frá því samræmdar skráningar hófust Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 15. júní 2018 15:27 3.856 umferðarlagabrot, að hraðamyndavélum undanskildum, voru skráð í maí. Vísir/Eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bárust 740 tilkynningar um hegningarlagabrot í maímánuði sem er lítillega meira en í apríl. Ökumenn virtust hafa slegið umdeilt met í maí vegna þess að aldrei fyrr hafa verið skráð jafn mörg hraðakstursbrot og í mánuðinum. Þetta kemur fram í afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir maímánuð 2018. 3.856 umferðarlagabrot, að hraðamyndavélum undanskildum, voru skráð í maí. Skráðum umferðarlagabrotum fjölgaði umtalsvert á milli ára. Fjölgunin helgast af fleiri tilkynningum um hraðastursbrot en rúmlega 3.000 slík brot voru skráð í mánuðinum. ekki hafa verið skráð jafn mörg hraðakstursbrot í einum mánuði frá því samræmdar skráningar hófust hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu árið 1999. Í maí bárust 97 tilkynningar um innbrot til lögreglu og fjölgar lítillega á milli mánaða. Fjöldi slíkra tilkynninga fjölgaði miðað við síðustu tólf mánuði á undan auk þess sem 12% fleiri tilkynningar um innbrot bárust að meðaltali það sem af er ári miðað við sama tímabil síðastliðin þrjú ár á undan. Í síðasta mánuði voru skráðar 103 tilkynningar um ofbeldisbrot sem þýðir að þeim hafi fækkað lítillega á milli mánaða. Skráðum ofbeldisbrotum fækkaði auk þess miðað við síðustu sex mánuði á undan. Það sem af er ári hafa borist um 12% fleiri tilkynningar um ofbeldisbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili síðastliðin þrjú ár á undan. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust alls 15 tilkynningar um kynferðisbrot sem áttu sér stað í maí. Tilkynningunum hefur fækkað miðað við síðustu sex og síðustu 12 mánuði á undan en fjölgað það sem af er ári um 21% miðað við meðaltal sama tímabils síðastliðin þrjú ár á undan.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira