Messan: Mistök að framlengja við Mourinho Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 24. september 2018 08:30 Jose Mourinho skrifaði undir framlengingu á samningi sínum við United í byrjun þessa árs vísir/getty
Manchester United gerði jafntefli við nýliða Wolves á heimavelli í sjöttu umferð ensku úrvalsdeildarinnar um helgina. Sérfræðingar Messunnar á Stöð 2 Sport ræddu lið United í þætti gærkvöldsins. United hefur ekki heillað marga í upphafi tímabilsins í enska boltanum og setti Ríkharð Óskar Guðnason fram spurninguna hvort United þyrfti ekki að gera meiri kröfur um fótboltastíl liðsins. „Það eru allir brjálaðir út af þessu. Eðlilega, því þeir eru aldir upp af leikstíl Alex Ferguson sem var náttúrulega allt annað en það sem við erum að sjá í dag, miklu meiri ákefð og miklu meiri sóknarbolti,“ sagði Gunnleifur Gunnleifsson, annar sérfræðinga þáttarins. „Ef ég væri stuðningsmaður Manchester United þá væri ég ósáttur með leikstílinn.“ Jón Kaldal benti á þá staðreynd að félög á borð við Liverpool og Tottenham hefðu ráðið til sín knattspyrnustjóra sem spiluðu svipaðan leikstíl og þá sem fylgt hafa félögunum. United gerði það hins vegar ekki. „Ætla þeir virkilega að láta Mourinho breyta því að þarna voru mestu skemmtikraftar enska boltans lengi og fara í svona þungaiðnað að pumpa boltanum fram á Fellaini?“ spurði Jón. „Klárlega mistök í mínum huga að endurnýja við Mourinho. Real Madrid nennti þessu ekki.“ Umræðuna í heild sinni má sjá í spilaranum með fréttinni.
Enski boltinn Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Sjá meira