Sænska handboltagoðsögnin Magnus Wislander: „Erfiðari æfingar á níunda áratugnum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2018 23:00 Magnus Wislander. Vísir/Getty
Púlæfingar íslenska karlalandsliðsins í handbolta undir stjórn Bogdan Kowalczyk voru þjóðþekktar á níunda áratugnum og samkvæmt helstu stjörnu gullliðs Svía á þeim tíma þá voru æfingarnar erfiðari hér áður fyrr. Magnus Wislander hefur þjálfað hjá sænska félaginu Redbergslid frá því að hann lagði skóna á hilluna árið 2005. Hann lék sinn fyrsta leik með árið Redbergslid 1981 og hefur því verið samfellt í handboltanum í 37 ár. Magnus Wislander var þó bara aðalþjálfari frá 2004 til 2012 en undanfarin sex ár hefur hann verið aðstoðarþjálfari liðsins. Ef einhver ætti samt að geta borið saman handboltann í dag og handboltann fyrir þrjátíu árum þá er það Magnus Wislander. Wislander var í viðtali við Expressen og þar var hann spurður út í það að leikmenn Redbergslid liðsins í dag hafa verið að kvarta undan miklu æfingaálagi. „Það voru erfiðari æfingar hjá okkur á níunda áratugnum. Ég er ekki að segja að þær hafi verið betri en þær voru erfiðari. Það er örugglega meiri gæði á æfingunum í dag. Í dag hlustum við líka meira á líkamann og erum fagmannlegri í æfingavalinu,“ sagði Magnus Wislander. Magnus Wislander varð tvisvar heimsmeistari (1990, 1999) og fjórum sinnum Evrópumeistari (1994, 1998, 2000, 2002) með sænska landsliðinu en hann vann síðan þrjú Ólympíusilfur að auki (1992, 1996, 2000). Wislander varð einnig sjö sinnum Þýskalandsmeistari með Kiel og vann sænska titilinn fimm sinnum með Redbergslid. Hann skoraði 1371 mark á tólf tímabilum með Kiel frá 1990 til 2002. Wislander er að mörgum talinn besti handboltamaður síðustu aldar en hann fékk slík verðlaun frá Alþjóðahandboltasambandinu árið 1999.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Logi Geirsson ætlar alla leið í MMA: „Hann peppar mig áfram“ Sport Amorim lifir þökk sé rauða spjaldi Sánchez Enski boltinn Liverpool með fullt hús stiga Enski boltinn Uppgjörið: Vestri - ÍA 0-4 | Skagamenn skoruðu mörkin og lyftu sér úr fallsæti Íslenski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 9-2 | Berglind Björg óstöðvandi í stórsigri Blika Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Valur 1-0 | Lífnauðsynlegur sigur Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - FHL 4-0 | Gulltryggðu sig inn í efri hlutann með stórsigri Íslenski boltinn Ósk pínir Þórdísi til sigurs: „Ég er ekki mamma eða pabbi hennar“ Sport Björn Borg tók of stóran skammt af eiturlyfjum Sport Fleiri fréttir Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Haukar sóttu tvö stig norður Sneypuför Stjörnumanna til Eyja Viggó magnaður í dramatísku jafntefli Sjá meira
Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 9-2 | Berglind Björg óstöðvandi í stórsigri Blika Íslenski boltinn
Uppgjörið: Breiðablik - Þór/KA 9-2 | Berglind Björg óstöðvandi í stórsigri Blika Íslenski boltinn