Harvard sagður mismuna gegn umsækjendum af asískum uppruna Sylvía Hall skrifar 17. júní 2018 18:48 Nemendur af asískum uppruna eru sagðir eiga minni möguleika á að komast inn í hinn vinsæla Harvard-háskóla en nemendur af öðrum uppruna. Vísir/Getty
Samtök sem berjast fyrir réttlátu umsóknarferli hafa sakað Harvard-háskóla um að mismuna gegn umsækjendum af asískum uppruna og segja skólann taka nemendur af öðrum uppruna fram yfir þá, þrátt fyrir að þeir af asískum uppruna séu í mörgum tilfellum hæfari. Þá hafa samtökin höfðað málsókn gegn háskólanum og kemur meðal annars fram í málsókninni að Harvard raði nemendum af asískum uppruna neðst þegar kemur að þáttum á borð við geðþokka.Möguleikarnir aukast ef þú ert af ákveðnum uppruna Málsóknin var tekin fyrir í dómsal í Boston á föstudag og sögðu samtökin að margt benti til þess að skólinn leitaði eftir því að jafna hlut kynþátta innan skólans og því væri uppruni fólks orðinn stór þáttur í umsóknarferli umsækjanda. „Umsækjandi af asískum uppruna með 25% líkur á inngöngu ætti til að mynda 35% líkur ef hann væri hvítur, 75% ef hann væri af suður-amerískum uppruna og 95% líkur á inngöngu ef hann væri af afrískum uppruna.“ Þá segja samtökin að háskólinn hafi komist að sömu niðurstöðu í sjálfstæðri rannsókn sem var framkvæmd árið 2013, en þeir hefðu aldrei birt niðurstöðurnar opinberlega. Harvard hefur neitað þessum ásökunum og segir hlutfall nemenda af asískum uppruna hafa hækkað innan skólans, en það er um 22,2%. Nemendur af afrískum uppruna eru 14,6% og nemendur af suður-amerískum uppruna eru 11,6%. Aðrir kynþættir, sem að stærstum hluta eru hvítir, eru um 50% nemenda skólans.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira