Íslandsmeistarar ÍBV taka á móti Val í Olísdeild karla í Vestmannaeyjum í kvöld en það skal áréttað að leikurinn hefst klukkan 18.00, en ekki 18.30 eins og sagt var frá í hádegisfréttum Bylgjunnar.
Eftirvæntingin fyrir leiknum er mikil en ÍBV og Valur eru bæði um miðja deild og geta með sigri í kvöld tekið mikilvægt skref í átt að því að blanda sér í toppbaráttu deildarinnar.
Þetta verður einnig fyrsti deildarleikur þeirra Agnars Smára Jónssonar og Róberts Arons Hostert í Vestmannaeyjum en þeir gengu í raðir Vals í sumar eftir að hafa spilað með ÍBV síðustu tvo tímabil á undan.
Stöð 2 Sport verður með beina útsendingu frá leiknum sem hefst klukkan 17.45.
