Minnisvarði eða ljósmyndastúdíó? Hulda Vigdísardóttir skrifar 7. september 2018 11:30 Í vor ákvað ég að slá sumarfríi mínu á frest. Tilhugsun um íslensk sumarkvöld og bjarta vinnudaga freistaði sem og auðvitað að eiga inni frí og fara til einhverrar sólríkrar eyju í haust. Þannig hugsaði ég mér að geta framlengt sumarið en sennilega seinkaði ég því bara; tja eða sneri röð árstíðanna við. Eftir sannkallað íslenskt haustveður í júní, júlí og ágúst, er ég nú komin í hitabylgju á Kýpur. Já, úr 6°C í Reykjavík í 36°C í Pafos. Ég flaug þó ekki beint hingað, heldur varði fáeinum dögum á leiðinni í Berlín, einni uppáhaldsborginni minni. Ég vissi að ég hefði nægan tíma til að slappa af á Kýpur og setti mig því í túristagírinn í Berlín; skipti yfir í sandala, setti á mig mittisveski og skellti derhúfunni á kollinn; já, eða þannig. Mig langaði að skoða eitthvað sem ég hafði ekki séð áður og mundi eftir að hafa rekist á fjölmargar flottar myndir á Instagram frá stað sem virtist býsna áhugaverður. Ég fór því að leita á Netinu og komst að því að þær voru teknar rétt hjá Brandenborgarhliðinu, á afar stóru svæði sem státar af 2711 tilkomumiklum steinsteypublokkum. Forvitni mín var vakin og ég las mér nánar til um staðinn sem reyndist vera eitt fjölsóttasta minnismerki borgarinnar. Vissulega hafði ég heyrt talað um minnisvarðann en einhvern veginn aldrei tengt Instagram-myndirnar við hann. Þær sýndu hamingjusama ferðalanga spóka sig um nýstárlegt svæði og minntu síður en svo á einn ljótasta glæp Evrópu. Ég hef alltaf haft áhuga af sögu og ákvað að skoða þennan fræga og margmyndaða minnisvarða en hann er helgaður þeim óramörgu gyðingum í Evrópu sem myrtir voru í helförinni þegar seinni heimstyrjöldin geisaði. Árlega heimsækir um hálf milljón ferðamanna minningarreitinn og því kannski engin furða að til séu ótal margar myndir þaðan. Á Instagram prýðir minnismerkið hundruð þúsunda mynda en flestar þeirra eiga þó sameiginlegt að sýna minnisvarðann einungis sem flotta byggingarlist og yfirleitt er hann aðeins hafður í bakgrunn. Þessar myndir vekja allt önnur hughrif en sá hryllingur sem heltekur hugann þegar hugsað er til helfararinnar, enda eiga brosmildir ferðamenn, lífstílsbloggarar, tískufyrirmyndir og áhrifavaldar nútímans fátt sameiginlegt með skipulagðri útrýmingu gyðinga í heimstyrjöldinni síðari. Nú tek ég sjálf mikið af myndum og er ansi virk á Instagram en eftir að hafa lesið mér til um staðinn, fannst mér margar glansmyndanna sem ég hafði séð þaðan á samfélagsmiðlum heldur óviðeigandi; flottar, jú og margar hverjar mjög eftirminnilegar en óviðeigandi engu að síður. Það er nóg af öðrum stöðum í Berlín (og heiminum öllum) til þess að taka smart sjálfsmyndir án þess að stilla sér upp við minningarstein saklauss fórnarlambs. Kannski er ég skrýtin en mér finnst það alla vega ekki svo ýkja frábrugðið því að fara í Fossvogskirkjugarð og taka þar nýja forsíðumynd fyrir Facebook. Minningarreiturinn í Berlín er mjög tilkomumikill og býður óneitanlega upp á mörg skemmtileg og myndræn sjónarhorn en þegar ég rölti um svæðið fannst mér sem megintilgangur margra með heimsókn sinni væri að ná góðri mynd; ekki að upplifa og skoða einstakan minnisvarða eða fræðast um sögu Evrópu, heldur einungis að taka flotta mynd til að deila á Netinu. Ég veit ekki hve margar myndir ég tróð mér óvart inn á með því að ganga fram hjá á vitlausum tíma en þar sem hæstu bautasteinarnir eru yfir 4 metrar (sá hæsti 4,5 m) hverfur fólk á milli þeirra; inn í listaverkið. Þegar litið er yfir svæðið má sjá sjálfustangir (eða kjánaprik, eins og vinkona mín kýs að kalla slíkar stangir) skjóta upp kollinum hér og þar, líkt og illgresi sem er jafnóðum rifið í burtu. Á undanförnum árum hefur uppgangur samfélagsmiðla verið ótrúlega hraður og um leið virðast þeir sífellt hafa meira vægi. Það að skrá sig í samband á Facebook jafngildir t.d. næstum trúlofun, utanlandsferðir eru til einskis ef ekki næst góð Instagram-mynd og á veitingarstöðum má enginn byrja á matnum fyrr en allir hafa náð góðu snappi. Kannski er þetta fullsterkt til orða tekið en þó er stundum eins og það sem ekki ratar á Facebook eða aðra miðla, hafi ekki átt sér stað í raun og veru; tja, eða a.m.k. ekki fyrir óviðstadda. Margir eru háðir því að setja eitthvað inn á samfélagsmiðla og álit annarra virðist oft skipta alltof miklu máli. Heimur glansmyndanna er býsna stór og getur ýtt undir samanburð og forvitni í garð annarra. Samfélasmiðlar hafa þó ótal kosti líka og á vissan hátt er það þeim að þakka að ég uppgötvaði þennan flotta minnisvarða í Berlín. Ég ákvað nú samt að sýna hinum látnum þá virðingu að birta ekki glaðlega Instagram-mynd af mér þaðan en mæli þó eindregið með heimsókn þangað. Það er býsna áhrifaríkt að ganga um þessa 2711 misháu bautasteina sem mynda eins konar völundarhús á nítján þúsund fermetra svæði; allt önnur upplifun en myndirnar á Instagram, því get ég lofað.Höfundur er M.A. í íslenskri málfræði. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur Margrét Kristín Blöndal Skoðun Pólítískt hugrekki Unnur Hrefna Jóhannsdóttir Skoðun Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt Ian McDonald Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun Vönduð vinnubrögð? Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Að sækja gullið (okkar) grein 2 Þröstur Friðfinnsson Skoðun Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um Kúbudeiluna og viðskiptabannið Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Gróf misbeiting illa fengins valds Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Að sækja gullið (okkar) grein 2 Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Pólítískt hugrekki Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vísir að lægri orkureikningi Einar Vilmarsson skrifar Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt Ian McDonald skrifar Skoðun Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Vönduð vinnubrögð? Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Veitingastaðir eru ekki kjarnorkuver Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Nýr vegvísir Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna Clara Ganslandt skrifar Skoðun Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Blaður 35 Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Kaldar kveðjur frá forsætisráðherrra til ferðaþjónustunnar Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Nú hefst samræmt próf í stærðfræði Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Sanngirni í Kópavogsmódelinu Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnarflokkarnir fylgja Landsvirkjun – gegn Þjórsárverum Svandís Svavarsdóttir,Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Skapandi framtíð – forvarnir og félagsstarf í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Upplýsingar um mataræði barna og unglinga á landsvísu eru of gamlar – það er óásættanlegt Birna Þórisdóttir,Sigurbjörg Bjarnadóttir,Inga Þórsdóttir skrifar Skoðun Hvaða orka? Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Það skiptir máli hvernig gervigreind er notuð í kennslu Hjörvar Ingi Haraldsson skrifar Skoðun Friðum Eyjafjörð Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Sóknaráætlanir landshlutanna – lykillinn að sterkara Íslandi Páll Snævar Brynjarsson,Sigríður Ó. Kristjánsdóttir,Sveinbjörg Rut Pétursdóttir,Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,Bryndís Fiona Ford,Ingunn Jónsdóttir,Berglind Kristinsdóttir,Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Eflum samstöðuna á kvennaári – Stöndum vörð um mannréttindi Kristín Ástgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun
Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley skrifar
Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson skrifar
Skoðun Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar? Bogi Ragnarsson skrifar
Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnarflokkarnir fylgja Landsvirkjun – gegn Þjórsárverum Svandís Svavarsdóttir,Álfheiður Ingadóttir skrifar
Skoðun Upplýsingar um mataræði barna og unglinga á landsvísu eru of gamlar – það er óásættanlegt Birna Þórisdóttir,Sigurbjörg Bjarnadóttir,Inga Þórsdóttir skrifar
Skoðun Sóknaráætlanir landshlutanna – lykillinn að sterkara Íslandi Páll Snævar Brynjarsson,Sigríður Ó. Kristjánsdóttir,Sveinbjörg Rut Pétursdóttir,Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,Bryndís Fiona Ford,Ingunn Jónsdóttir,Berglind Kristinsdóttir,Páll Björgvin Guðmundsson skrifar
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun