Handbolta-Messi fór hamförum | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. maí 2018 08:30 Diego Simonet með verðlaunin fyrir að vera besti leikmaður úrslitahelgarinnar. vísir/getty
Franska liðið Montpellier hafði betur í frönskum úrslitaleik gegn Nantes í Meistaradeildarinnar í handbolta og stóð uppi sem sigurvegari í annað sinn í sögu félagsins. Þrátt fyrir endalausa peningaeyðslu Paris-Saint Germain gengur liðinu ekkert að vinna Meistaradeildina en franskt lið hafði ekki unnið keppnina síðan að Montpellier gerði það síðast árið 2003. Í liði meistaranna er lítil og snaggaraleg vinstri skytta frá Argentínu sem heitir Diego Simonet. Hann varð í gær fyrsti handboltamaðurinn frá Suður-Ameríku sem vinnur Meistaradeildina. Ekki nóg með að vera fyrsti Suður-Ameríkumaðurinn sem vinnur Meistaradeiildina þá var hann einnig útnefndur besti leikmaður úrslitahelgarinnar þannig svo sannarlega sögulegur dagur fyrir Argentínumanninn. Simonet, sem er 28 ára gamall, er ótrúlega flinkur handboltamaður og stundum kallaður „Handbolta-Messi“ vegna tilþrifanna sem að hann býður upp á. Dæmi um þau má sjá í myndböndunum hér að neðan. Simonet tryggði Montpellier meðal annars farseðilinn í úrslitaleikinn með því að skora sigurmarkið á móti ríkjandi meisturum RK Vardar þegar að rétt rúm hálf mínúta var eftir. Handboltaáhugamenn kannast kannski við Simonet-nafnið en þeir eru ekki nema þrír bræðurnir; Diego, Pablo og Sebastián. Allir hafa spilað fyrir argentínska landsliðið en Ísland mætti Argentínu í tveimur vináttuleikjum fyrir Ólympíuleikana í London og svo aftur á leikunum sjálfum. Hér að neðan má sjá það besta frá handbolta-Messi um helgina.
Handbolti Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Enski boltinn Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Umdeild auglýsing heldur áfram að draga dilk á eftir sér Golf Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Fleiri fréttir Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Mögnuð tilþrif Íslendingsins unga vekja athygli Viktor Gísli framlengir við Barcelona Stráklingarnir okkar fóru illa með Króata í fjórða sigrinum í röð á EM Sjá meira