Brot á loftgæðareglugerð hefur engar beinar afleiðingar Þorbjörn Þórðarson skrifar 15. mars 2018 19:45
Þeim dögum sem svifryk mátti vera yfir heilsuverndarmörkum hér á landi var fjölgað úr sjö sinnum á ári í þrjátíu og fimm sinnum á ári með reglugerðarbreytingu sem tók gildi í nóvember 2016. Ef dagafjöldi svifryks fer yfir hámarkið hefur það í raun engar afleiðingar. Áætlað er að rekja megi áttatíu ótímabær dauðsföll á ári hér á landi til loftmengunar vegna svifryks en færri en fimm dauðsföll vegna köfnunarefnisdíoxíðs og ósons. Köfnunarefnisdíoxíð, sem finnst í útblæstri bifreiða, má aðeins fara yfir heilsuverndarmörk sjö daga á ári en hefur farið yfir þessi mörk sex daga það sem af er 2018 eins og kom fram í fréttum okkar á mánudag. Svifrykið hefur líka verið óvenjulega oft yfir heilsuverndarmörkum sem eru 50 míkrógrömm á rúmmetra andrúmslofts. Fram til ársins 2016 mátti svifrykið vera yfir heilsuverndarmörkum 7 daga á ári en með breytingu á reglugerð sem tók gildi í nóvember það ár var dögunum fjölgað upp í 35 á ári. Sigrún Magnúsdóttir þáverandi umhverfisráðherra setti hinar nýju reglur en ástæðan var breytt viðmið Evrópusambandsins í tilskipun um loftgæði. „Evrópusambandið hafði áður verið með mörkin í þrjátíu og fimm en ákvað að trappa það niður í sjö skipti á áratug, það var ákveðið fyrir árið 2000. Svo skipti Evrópusambandið um skoðun og taldi þetta ekki raunhæft og mörg ríki Evrópu sögðu, við náum þessu aldrei. Þannig að það var í raun ákveðið að fara til baka í þrjátíu og fimm skipti,“ segir Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun.Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun.En hvaða afleiðingar hefur það þegar dagafjöldi svifryks eða köfnunarefnisdíoxíðs yfir heilsuverndarmörkum fer yfir hámark reglugerðarinnar? Í raun og veru gerist ekki neitt enda er ekki kveðið á um nein viðurlög eða beinar aðgerðir í reglugerðinni sjálfri eða lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir sem reglugerðin vísar í varðandi viðurlög. Það má hins vegar ímynda sér að einstaklingar eða lögaðilar gætu mögulega reynt að höfða mál til að krefjast viðurkenningar á rétti til að njóta loftgæða í samræmi við efni reglugerðarinnar. Niðurstaðan í díselmálinu í Þýskalandi kallast á við íslenskan veruleika Þegar stjórnsýsludómstóllinn í Leipzig í Þýskalandi komst að þeirri niðurstöðu í lok febrúar að þýskar borgir mættu banna díselbíla var niðurstaðan reist á þeirri forsendu að borgirnar gætu innleitt bannið til þess að tryggja loftgæði samkvæmt áðurnefndri loftgæðatilskipun Evrópusambandsins sem íslenska reglugerðin er byggð á og eldri tilskipun um sama efni. Í skýrslu verkfræðistofunnar Eflu um uppruna svifryks sem kom út í fyrra var lagt til að það yrði kannað hvort mögulegt væri að takmarka umferð díselbíla með það fyrir augum að draga úr sóti sem er stór hluti svifryksins. Slíkar hugmyndir hafa hins vegar fengið lítinn hljómgrunn hjá oddvitum þeirra flokka sem bjóða fram í Reykjavík. Að þessu sögðu er enginn pólitískur áhugi fyrir slíku banni. Þorsteinn Jóhannsson hjá Umhverfisstofnun segir að innan skamms verði þó sveitarfélög líklega komin með betri lagaheimildir til að innleiða slíkt bann með það fyrir augum að tryggja loftgæði. „Það er verið að vinna að breytingum á umferðarlögum núna sem miða að því að veita yfirvöldum, sveitarfélögum eftir atvikum, heimildir til þess að takmarka umferð bíla, takmarka þá umferð díselbíla þá hugsanlega sérstaklega, eða setja gjald á nagladekk og þetta eru allt aðgerðir sem miða að því að lágmarka mengun,“ segir Þorsteinn. Nú þegar hafa margar evrópskar borgir áform um að banna umferð díselbíla að hluta eða að öllu leyti til að draga úr loftmengun. Hér má nefna Osló, Berlín, Stuttgart, Hamborg, París, London, Madríd, Róm og Aþenu.
Tengdar fréttir Mikil hætta á svifryki í borginni: Hvetja til þess að fólk noti frekar almenningssamgöngur en einkabílinn Veðrið á höfuðborgarsvæðinu er þannig að loftgæði geta orðið verulega slæm. 9. mars 2018 11:15 Vegagerðin kveðst vonast til að svifryk minnki á næstunni Kröfur til slitþols vega hafa aukist undanfarin misseri. Áhrifin eiga eftir að koma enn skýrar fram, vonandi í minna svifryki, segir verkfræðingur hjá Vegagerðinni. Ólíklegt að dragi úr svifryki með steyptum götum. 14. mars 2018 06:00 Hár styrkur svifryks í Reykjavík Styrkur svifryks er hár í dag samkvæmt mælingum í mælistöðvum við Grensásveg, Hringbraut og Eiríksgötu. 8. mars 2018 11:20 Varhugavert að fara út að skokka á verstu dögum Sex daga í ár hefur svifryk í Reykjavík farið yfir sólarhringsheilsumörk. Svifrykið getur aukið líkur á blóðtöppum og hjartaáföllum. Lagasetningu þarf til að hægt sé að draga úr umferð. Unnið er að breytingum á umferðarlögum. 13. mars 2018 06:00 Þúsundir þyrftu að leggja einkabílnum til að það hefði áhrif á svifryksmengun Borgin sendi frá sér fréttatilkynningu skömmu fyrir hádegi í dag þar sem varað er við háum styrk svifryks. Fyrir helgi var einnig varað við svifryksmengun en þegar veður er gott líkt og nú, engin úrkoma og hægur vindur, eykst hættan á slíkri mengun. 12. mars 2018 13:39 Stofnbrautirnar úðaðar gegn svifryki Í nótt voru fjölfarnar götur rykbundnar til þess að bæta loftgæði í borginni. 5. mars 2018 10:26 Er fýsilegt að banna dieselbíla í Reykjavík til að draga úr loftmengun? Borgarstjórar í Þýskalandi íhuga nú viðbrögð við dómi stjórnsýsludómstólsins í Leipzig um að borgum þar í landi sé heimilt að banna díselbíla til að draga úr loftmengun. Svifryk í Reykjavík hefur reglulega verið yfir heilsuverndarmörkum. Verkfræðistofa sem rannsakaði svifryksmengunina lagði til takmarkanir á umferð díselbíla í borginni. 28. febrúar 2018 19:15 Mest lesið Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Innlent „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Innlent Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Innlent Enginn meirihluti í Grindavík Innlent Fleiri fréttir „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Handsala samstarfið og gera Hilmar að bæjarstjóra Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Réðst á dóttur sína eftir að hún rak honum löðrung Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Enginn meirihluti í Grindavík Ingimar verður bæjarstjóri í Hveragerði Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Stefán Carlsson er látinn Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Sjá meira
Mikil hætta á svifryki í borginni: Hvetja til þess að fólk noti frekar almenningssamgöngur en einkabílinn Veðrið á höfuðborgarsvæðinu er þannig að loftgæði geta orðið verulega slæm. 9. mars 2018 11:15
Vegagerðin kveðst vonast til að svifryk minnki á næstunni Kröfur til slitþols vega hafa aukist undanfarin misseri. Áhrifin eiga eftir að koma enn skýrar fram, vonandi í minna svifryki, segir verkfræðingur hjá Vegagerðinni. Ólíklegt að dragi úr svifryki með steyptum götum. 14. mars 2018 06:00
Hár styrkur svifryks í Reykjavík Styrkur svifryks er hár í dag samkvæmt mælingum í mælistöðvum við Grensásveg, Hringbraut og Eiríksgötu. 8. mars 2018 11:20
Varhugavert að fara út að skokka á verstu dögum Sex daga í ár hefur svifryk í Reykjavík farið yfir sólarhringsheilsumörk. Svifrykið getur aukið líkur á blóðtöppum og hjartaáföllum. Lagasetningu þarf til að hægt sé að draga úr umferð. Unnið er að breytingum á umferðarlögum. 13. mars 2018 06:00
Þúsundir þyrftu að leggja einkabílnum til að það hefði áhrif á svifryksmengun Borgin sendi frá sér fréttatilkynningu skömmu fyrir hádegi í dag þar sem varað er við háum styrk svifryks. Fyrir helgi var einnig varað við svifryksmengun en þegar veður er gott líkt og nú, engin úrkoma og hægur vindur, eykst hættan á slíkri mengun. 12. mars 2018 13:39
Stofnbrautirnar úðaðar gegn svifryki Í nótt voru fjölfarnar götur rykbundnar til þess að bæta loftgæði í borginni. 5. mars 2018 10:26
Er fýsilegt að banna dieselbíla í Reykjavík til að draga úr loftmengun? Borgarstjórar í Þýskalandi íhuga nú viðbrögð við dómi stjórnsýsludómstólsins í Leipzig um að borgum þar í landi sé heimilt að banna díselbíla til að draga úr loftmengun. Svifryk í Reykjavík hefur reglulega verið yfir heilsuverndarmörkum. Verkfræðistofa sem rannsakaði svifryksmengunina lagði til takmarkanir á umferð díselbíla í borginni. 28. febrúar 2018 19:15