Hitinn varla yfir 15 stig Stefán Ó. Jónsson skrifar 23. júlí 2018 07:22 Það mun rigna á ferðamenn næstu daga. VÍSIR/VALLI
Úrkoma og napurleiki munu einkenna veðrið næstu daga ef marka má spákort Veðurstofunnar. Þaulsetið lægðardrag er yfir landinu og því skýjað að mestu og úrkoma í flestum landshlutum næstu daga. Að sögn veðurfræðings gætu þó myndast myndast glufur í skýjahulunni og sólin brotist fram. Dragið grynnist smám saman og þá aukast líkurnar á því á morgun og hinn. Landið er baðað svölu lofti og því mun hitinn eiga erfitt með að fara upp fyrir 15 stig. Þá verður svipað veður á morgun og hitatölurnar á bilinu 8 til 14 stig. Lægðardragið verður hins vegar úr sögunni á fimmtudag en þá taka við mildari austlægar áttir með hlýrra lofti. Það er þó útlit fyrir lægðarbylgu með talsverðri rigningu seint á fimmtudagskvöldi.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag: Norðaustan 3-8 m/s NV-lands, en annars hægari breytileg átt. Dálítil rigning eða skúrir, en skýjað með köflum og þurrt að kalla á V-landi og Vestfjörðum. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast sunnan- og suðvestanlands. Á miðvikudag: Suðaustlæg átt, 3-8 og rigning með köflum eða skúrir í flestum landshltum. Hiti 8 til 15 stig, svalast við N-ströndina. Á fimmtudag: Austan 3-10, hvassast syðst. Skýjað og dálítil væta SA-lands, en skýjað með köflum V- og N-til. Vaxandi norðaustanátt með talsverðri rigningu SA-til um kvöldið. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast V- og N-lands. Á föstudag: Suðlæg eða breytileg átt, 3-10 og rigning, en léttir til NA-lands. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast á NA-til. Á laugardag: Austlæg átt og dálítil rigning SA-lands, en léttir víða til V- og N-lands. Hiti 8 til 18 stig, svalast SA-til. Á sunnudag: Norðaustlæg átt með rigningu SA-til, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast SV-til.
Veður Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Fleiri fréttir Endurgreiðslur, möguleg smithætta í fargufum og tekist á um samfélagsmiðlabann Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Sjá meira