„Undarleg lykt“ í herbergi látnu hótelgestanna Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. ágúst 2018 14:53 John og Susan Cooper létust á hótelinu á dögunum. facebook
Yfirvöld sem fara með rannsókn á andláti breskra hjóna í Egyptalandi í síðustu viku segja „óvenjulega lykt“ hafa fundist inni á hótelherbergi þeirra. Þetta rennir frekari stoðum undir það að eitthvað í loftræstikerfi hótelsins hafi dregið fólkið til dauða, að því er fram kemur á vef breska dagblaðsins The Guardian. Hjónin John og Susan Cooper, sem bæði voru á sjötugsaldri, létust á hótelinu Steigenberger Aqua Magic í borginni Hurghada sem stendur við Rauðahafið. Í kjölfarið ákvað bókunarrisinn Thomas Cook að flytja alla viðskiptavini sína af hótelinu. Ahmed Abdullah, ríkisstjóri Rauða hafs-umdæmisins í Egyptalandi, sagði á blaðamannafundi í borginni í dag að undarleg lykt hafi fundist í herbergi hjónanna. Herbergið var lokað öllum óviðkomandi eftir andlát hjónanna en sérfræðingar rannsaka nú loftræstikerfi hótelsins. Þá telur dóttir hjónanna, Kelly Omerod, að foreldrar hennar hafi látist við innöndun á óþekktu efni. Nokkrir gestir, sem dvöldu á hótelinu á sama tíma og Cooper-hjónin, kvörtuðu undan veikindum og ónotum í maga. Ekkert bendir þó til þess að hjónin hafi fundið fyrir slíkum einkennum. Rannsókn á andláti Johns og Susan stendur enn yfir.
Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira