Graður höfrungur olli usla í Frakklandi Samúel Karl Ólason skrifar 27. ágúst 2018 20:30 Zafar virtist reyna að hafa mök við allt og alla. Myndin er ekki af Zafar sjálfum. Vísir/Getty
Bæjarstjóri Landévennec í Frakklandi meinaði fólki í síðustu viku að synda og kafa á baðströndum við bæinn á meðan ágengur höfrungur var á svæðinu. Það var gert af ótta við að höfrungurinn graði gæti skaðað einhvern og var fólki meinað að fara nærri honum en 50 metra. Höfrungurinn, sem kallaður er Zafar, hafði verið við bæinn í nokkrar vikur. Þar elti sundmenn og kajakræðara og skemmti börnum. Fólk varð hins vegar hrætt við hann vegna þess að Zafar virtist reyna að hafa mök við allt og alla. Hann nuddaði sér utan í báta og meðal annars þurfti að bjarga einni konu úr sjónum vegna þess að höfrungurinn kom í veg fyrir að hún kæmist í land. Þar að auki fleygði hann ungri konu upp í loftið í síðustu viku. Óttast var að Zafar gæti skaðað fólk með sporði sínum með atlotunum. Nú virðist þó sem að makaleitin hafi sent Zafar á aðrar slóðir og hafa íbúar bæjarins ekki séð hann í dag, samkvæmt The Local. Íbúar Landévennec geta því farið að synda aftur.Ekki voru allir sáttir með bannið og var sett af stað undirskriftasöfnun til að reyna að fá það fellt niður. Forsvarsmaður söfnunarinnar sagði bæjarstjórann hafa látið Zafar líta út sem grimmt rándýr og sagði slys vegna höfrunga aldrei hafa átt sér stað á svæðinu.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Erlent Fleiri fréttir Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York Sjá meira