Sá strax að saga Rjóma væri efni í mynd Guðný Hrönn skrifar 23. mars 2018 12:30 Rjómi á fimm ára afmælisdeginum. „
Myndin er óvenjuleg því hún fjallar um hund, það hefur örugglega aldrei verið gerð heimildarmynd um hund á Íslandi,“ segir dýralæknirinn og kvikmyndagerðarkonan Freyja Kristinsdóttir sem er þessa dagana að leggja lokahönd á heimildarmynd um hundinn Rjóma, sem er af tegundinni English Bull Terrier, og eiganda hans, Hilmar Egil Jónsson, sem stóð í áralangri baráttu við Matvælastofnun áður en Rjómi fékk loksins að koma til Íslands frá Noregi. Hilmar sótti um að flytja Rjóma til Íslands frá Noregi árið 2012. Hann fékk synjun frá MAST og málið vakti athygli. Margir töldu að ástæðan fyrir synjun MAST væri vegna þess að English Bull Terrier væri á lista yfir bannaðar hundategundir á Íslandi en svo var ekki. Þess má geta að Rjómi kom til landsins í nóvember í fyrra. Málið vakti athygli Freyju þegar hún heyrði af því árið 2015. „Þá var ég nýbúin að klára nám í heimildarmyndagerð í Danmörku. Þegar ég fór að skoða málið betur þá sá ég strax að þetta væri efni í heimildarmynd.“ Þegar Freyja tók ákvörðun um að fjalla um mál Rjóma setti hún sig í samband við Hilmar og hóf rannsóknarvinnuna. „Hilmar sendi mér málsgögnin og ég byrjaði á að lesa mig í gegnum það allt. Þar kemur ýmislegt fram sem kom mér mjög mikið á óvart,“ segir Freyja sem er hundaþjálfari til viðbótar við það að vera dýralæknir. Hún segir hennar þekkingu hafa komið sér vel þegar hún skoðaði rök MAST fyrir því að Rjómi mætti ekki koma til landsins. „Sú ástæða sem MAST kom með var sú að English Bull Terrier væri náskyldur Pit Bull Terrier, sem er tegund á bannlista. En þessar tegundir eru í raun ekkert svo skyldar. Þau hjá MAST vilja sem sagt meina að þessi tegund sé hættuleg en vísuðu ekki í neinar rannsóknir eða neitt slíkt. Minn grunnur hjálpar mér náttúrulega mjög mikið við að skilja þau rök sem MAST kemur með í þessu máli og meta þau út frá faglegu sjónarmiði.“Eigandinn gafst aldrei upp Freyja segir sögu Rjóma vera óvenjulega, sérstaklega fyrir þær sakir að eigandi hans gafst ekki upp. „Ég held að svipuð mál hafi komið margoft upp hjá MAST en það sem er óvenjulegt í máli Rjóma er að Hilmar gefst ekki upp. Ég held að flestir sem hafa lent í því að fá neitun frá MAST hafi ekki lagt í allan þann kostnað, tíma og vinnu sem fer í að fara í mál. En Hilmar gafst ekki upp, alveg sama hversu oft hann tapaði. Það er það sem gerir þetta mál einstakt.“Ekkert viðtal við MAST Aðspurð hvort hún sjálf hafi leitað svara hjá MAST við gerð myndarinnar segir Freyja: „Já, ég er búin að reyna að fá viðtal, ég reyndi það alveg í tvo mánuði. En ég fékk aldrei nein svör en svo fékk ég að lokum þau svör að þau vildu ekki veita viðtal. Ég er svo búin að fá eina yfirlýsingu frá þeim en í henni kom ekkert fram sem ég hafði ekki séð áður.“ Freyja segir viðbrögð frá MAST vera það sem vanti í myndina sína. „Það sem ég hefði viljað hafa með í myndinni er viðtal við einhvern frá MAST, en það verður þá kannski bara að koma eftir að myndin er komin út,“ segir Freyja að lokum. Hún stefnir á að klára myndina um Rjóma á næstu dögum og koma henni svo í sýningu í Bíó Paradís í maí. Áhugasömum er bent á að nú stendur yfir söfnun á Karolina Fund þar sem fólk getur styrkt verkefnið og keypt bíómiða í forsölu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir Færsluóður miðaldra höfundur: „Þetta er Mark Zuckerberg að kenna“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Sjá meira