Búist við strekkingi í kvöld Birgir Olgeirsson skrifar 23. desember 2018 11:18 Jólakötturinn verður líkast til ekki baðaður í snjó þessi jólin. vísir/vilhelm
Útlit er fyrir hríðarveður á Öxnadalsheiði seinnipartinn og einkum í kvöld. Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að skyggni og aðstæður fari versnandi. Í nótt og fyrramálið mun hvessa umtalsvert með kófi og lélegu skyggni á háheiðinni. Veðurstofa Íslands segir að í dag verði suðvestan gola eða kaldi og lítils háttar rigning eða snjókoma á vestanverðu landinu. Seint í dag verður suðvestanáttin orðin strekkingur að styrk nokkuð víða og rigning með köflum, en áfram þurrt eystra. Það hlýnar smám saman í veðri, hiti 1 til 6 stig í kvöld. Á morgun má áfram búast við suðvestan strekkingi, en það herðir á vindi norðanlands og þar má búast við hvassviðri eða jafnvel stormi á stöku stað. Útlit er fyrir skýjað veður um allt land og úrkomulítið, þó má nefna að horfur eru á rigningu norðvestan til fyrripart dags. Það heldur áfram að hlýna og hita á morgun er spáð á bilinu 3 til 10 stig, hlýjast á Austfjörðum. Annað kvöld dregur úr vindi á landinu og er það vel við hæfi þegar heilög jól eru gengin í garð. Skemmst er frá því að segja að á jóladag sem og á annan og þriðja í jólum er útlit fyrir mildar suðlægar áttir með vætusömu veðri, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi.
Veður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira