Djúp lægð á leiðinni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. október 2018 07:51 Það verður þörf fyrir stígvél, regnföt og regnhlífar um helgina ef marka má veðurspána. vísir/hanna
Það mun ganga á með skúradembum í dag í allhvassri suðvestanátt en á austanverðu mun hlýna í hnjúkaþeynum, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Á morgun gæti svo vindur orðið til trafala þar sem djúp lægð virðist ætla að koma nokkuð nærri landinu með talsverðu hvassviðri víða um land, þá einkum norðan og austan til, og rigningu sunnan til á landinu. Segir í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofunnar að seint í kvöld muni ganga í hvassa suðaustanátt með talsverðri rigningu, fyrst syðst á landinu. Í fyrramálið snýst vindáttin svo í suðvestan með skúrum og er útlit fyrir 15 til 23 metra á sekúndu síðdegis á morgun. Þá geta vindhviður til fjalla náð allt að 40 metrum á sekúndu seint annað kvöld, einkum á Vestfjörðum, Tröllaskaga og Austfjörðum.Veðurhorfur á landinu:Suðvestan 8-15 m/s og skúrir en rofar til norðaustan og austanlands með morgninum. Heldur hægari um tíma í kvöld en vaxandi suðaustanátt með talsverðri rigningu nálægt miðnætti, fyrst við suðurströndina. Snýst í suðvestan 10-18 m/s með skúrum í fyrramálið en 15-23 m/s annað kvöld og sums staðar samfelldari úrkoma en yfirleitt þurrt NA-til. Hiti 2 til 8 stig.Á laugardag:Suðvestan 15-23 m/s með rigningu og síðan skúrum en þurrt að kalla um landið norðaustanvert. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast á Austurlandi.Á sunnudag:Vestlæg átt, 8-15 m/s og skúrir eða él, en léttskýjað austantil á landinu. Hiti 1 til 6 stig.Á mánudag:Vestan 5-13. Rigning með köflum en þurrt að mestu á Austurlandi. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira